Ægir - 01.06.1998, Blaðsíða 26
Einar K. Guðfinnsson:
Treystum
fiskveiðistj ómun
smábáta í sessi
ví hefiir verið haldið fram að litl-
ar breytiiígar hafi orðið á fisk-
veiðistjórnarkerfinu á undangengn-
um árum. Það er þó ekki rétt. Effarið
er yfir málið sjáum við að verulegar
breytingar hafa verið gerðar á kerf-
inu. Afýmsu er að taka en nefna má
að með lagabreytingum á þessu kjör-
tímabili, á árunum 1995 og þó eink-
um árið 1996 og í fyrra, voru sköpuð
ný oggerbreytt skilyrði fyrir króka-
leyfisbátana. Þessir bátar róa nú eftir
sóknartengdu kerfi sem hefur fœrt
þeim stóraukið rými til athafna.
Þetta sjáum við meðal annars í því
að þegar flokkur krókaleyfisbátanna
varð til árið 1991 veiddu þeir rúm 2
prósent þorskaflans. Núna er búið að
festa það í sessi að þeir fá ríflega 13,9
prósent þorkaflans. Hluti þessa flota
rær eftir svokölluðu þorskaflahámarks-
kerfi, aðrir samkvæmt dagakerfi.
Enginn vafi er á því að þetta kerfi
og sú sóknarbreyting sem þessi floti
hefur notið hefur skilað margvíslegum
árangri.
Fyllt í skörðin sem
kvótamissirinn olli
í fyrsta lagi má benda á að þessir
bátar hafa fyllt í þau grimmdar-
iegu skörð sem kvótakerfið hefur
víða skilið eftir sig. Án þessara
báta er hætt við að daufleg sjón
mætti manni víða um byggðir
landsins. Þannig hefur þetta
kerfi fært bjargræðið að landi
sjávarútvegsbyggðanna þar sem
lítill kvóti er til staðar.
Hagstætt
fiskvinnslunni
í annan stað má benda á að afli
þessara báta kemur almennt til
vinnslu innanlands og skapar
því atvinnutækifæri, veldur
veltuaukningu í sjávarútvegs-
byggðunum og er því kjölfesta
sem annað atvinnulíf byggir á.
Það er ekki bara að þetta sé verð-
mætt fyrir hinar minni fisk-
vinnslur, stærri fyrirtæki eru líka
SKIPASALAN ARSALIR
Seljendur og kaupendur
skipa og báta, við erum
ekki fiœrykkur en nczsti
sími, fax eða tölva.
Hafðu samband og sjáðu
hvað við getum gert
fyrirþig.
SKIPASALAN ÁRSALIR
Lágmúla 5,108 Reykjavík
Sími: 533 4200, Fax: 533 4206
Björgvin Björgvinsson
Netfang: arsalir@treknet.is
farin að reiða sig í vaxandi mæli á
þetta hráefni til vinnslunnar.
Auðveldar nýliðun
í þriðja lagi opnar þessi floti smábáta
leið fyrir unga menn inn í útgerð að
nýju. Takmarkaðar aflaheimildir og
fráleit verðmyndun á aflahlutdeild -
kvóta - hefur girt fyrir möguleika
manna að taka þátt í útgerð. Króka-
kerfið hefur opnað ungum mönnum
nýja leið inn í útgerð og fjölgað í hópi
sjálfstæðra útgerðarmanna. Þetta er
ein leiðin sem hægt er að halda op-
inni fyrir þá nýliðun sem við viljum
að sé til staðar í útgerð á íslandi.
Þannig hefur það leitt tii aukinnar
eignadreifingar í sjávarútvegi og leyst
úr læðingi krafta sem skipulag frelsis,
samkeppni og tækifæra hefur í för
með sér.
Arðbærar og
vistvænar veiðar
í fjórða lagi þá blasir við að þessar
veiðar eru arðbærar. Veiðar með kyrr-
stæðum veiðarfærum á grunnslóð
hafa almennt ekki mikinn útgerðar-
kostnað í för með sér. Olíukostnaður-
inn er lítill og notkun á öðrum slíkum
erlendum aðföngum því ekki stór þátt-
ur í útgerðarrekstrinum. Svo er slíkur
veiðiskapur umhverfisvænn; nokkuð
sem æ meira verður á dagskrá íslenskr-
ar og alþjóðlegrar umræðu.
Aðalatriðið
Síðast en ekki síst, og raunar það sem
26 Mcm