Ægir - 01.06.1998, Blaðsíða 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Feðgarnir og trillukarlamir Hjörtur Arnfmnsson og Kristinn, sonur hans, glaðbeittir á
hafnarkantinum í Neskaupstað.
þetta. Atkvæðaveiðarnar hafa farið
verst með kvótakerfið."
Og Hjörtur heldur áfram að úttala
sig um kvótakerfið.
„Það er þrisvar búið að úthluta
kvóta síðan ég byrjaði á kvóta sem hét
þá aflahámark árið 1986. Staðreyndin
er sú að sá kvóti sem hefur verið út-
hlutað eftir að kvótakerfið var sett á,
þ.e. tvisvar sinnum til viðbótar upp-
haflegu úthlutuninni, hefur verið seld-
ur strax og það eru stóru karlarnir sem
kaupa. Síðan fara þessir sömu seljend-
ur aftur inn í krókakerfið og stóla á
það að fá aðra úthlutun við næstu
kosningar. Hefði ég valið krókakerfi
árið 1986 en ekki kvótakerfið þá hefði
ég að sjálfsögðu selt og verið búinn að
selja kvótann tvisvar í dag og hættur
þessu striti. Ég hef ekki séð stóran pen-
ing útúr þessum gjöfum sem alltaf er
verið að tala um að okkur séu gefnar.
Áður en kvótakerfið kom réri ég einn á
litlum opnum báti og var að fiska
þetta 80 til 100 tonn á ári. Fyrsti kvót-
inn sem ég fékk var 87 tonn. Þá var
veiðireynsla mín s.l. 3 ár 97 tonn, fékk
sem sagt 10% skerðingu. Síðan kom
önnur skerðing og önnur og í dag á ég
út úr þessum kvóta rúmlega 30 tonn.
Svo ég get ekki séð að ég hafi fengið
neitt á silfurfati út úr þessu.
Maður er búinn að tapa mörgum
tugum tonna út í kerfið því það er
alltaf verið að kaupa atkvæði, það er
alveg á hreinu. Og það verð ég að
segja um blessaða vinstri flokkana að
þeirra stefna virðist bara vera í dag að
kaupa atkvæði, alveg eins og Sverrir
Hermannsson og hans menn. Það eru
þess vegna atkvæðaveiðarnar sem fara
verst með kvótakerfið."
Trúðum ráðamönnum
Þegar talið berst að því hvað eigi að
koma í staðinn fyrir núverandi kerfi
verður fátt um svör. „Þau hefur eng-
inn og við eigum heldur engin svör
við því hvað skuli koma í staðinn.
Þrátt fyrir að núverandi kerfi sé mein-
gallað og óréttlátt þá hefur það þó gert
það að verkum að menn eru að veiða
skipulegar en áður.
Þegar kvótinn var settur á var okkur
sagt af þáverandi sjávarútvegsráðherra
og núverandi viðskiptaráðherra, sem
var þá hans aðstoðarmaður, að kvót-
inn væri eina vitið, við fengjum að
gera það sem við værum að gera í dag
plús-mínus skerðinguna. Við fylgdum
þessu og trúðum en þessir ráðamenn
hafa verið að ljúga í okkur alla tíð síð-
an við byrjuðum í kvótakerfinu. Þeir
komu að vísu ekki á rúmstokkinn til
okkar og sögðu þetta, en þetta var það
sem haldið var fram. Fyrir hverjar
kosningar höfum við verið mínusaðir
stórlega og það verður kannski gert
aftur núna. Stór flutningur á kvóta
hefur verið í gegnum smábátakerfið og
yfir á þá stóru.
M3ÍR 37