Ægir - 01.08.1998, Page 13
Fjarskipti í sjávarútvegi
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
í raun má segja að um þrjá kosti sé
að velja ef t.d. verður slys um borð í
skipi úti á sjó. Skipstjórnendur geta
sjálfir búið um sár, kallað í þyrlu eða
snúið skipinu til lands.
„Með þessari tækni, sem við erum
að þróa, geta áhafnir leitað sér ai-
mennrar læknisþjónustu beint til
lækna. Ef um áverka er að ræða þá er
hægt að taka stafrænar myndir af
þeim, senda til sjúkrahúss og þar tekur
læknir við myndunum upp á skjá og
ef hann ákveður að búa skuli um sár
um borð þá getur hann leiðbeint með
músarbendli inn á tölvumyndinni um
umbúðirnar og þær leiðbeiningar
koma fram á sömu tölvumynd á
skjánum um borð. En fyrst og fremst
hjálpar þessi möguleiki læknunum við
sjúkdómsgreiningu og að taka ákvörð-
un um hvort fara eigi fram á að skip-
um sé snúið með sjúkling í land eða
hvort sjúkraþyrla skuli send," segir Jón
Bragi.
Viðamikið tilraunaverkefni
Þörfin fyrir tengingu við sjúkrahús er
mest hjá þeim skipum sem eru fjærst
landi. Eini möguleiki þessara skipa á
sendingu tölvugagna í land er í gegn-
um gervihnattasíma og segir Jón Bragi
að vegna þess hversu lítil flutningsget-
an er í því kerfi þá verði þess nokkuð
að bíða að mögulegt verði að hafa
opna línu með lifandi myndum.
Skyn ehf. vinnur náið með Sjúkra-
húsi Reykjavíkur og Landspítalanum
og leitaði til útgerðaraðila um að taka
þátt í tilraunaverkefninu og segir Jón
Bragi að það muni standa út næsta ár.
Komið verður á sambandi milli skip-
anna og slysadeildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur og sendar tilraunamyndir
og reynt að líkja á allan hátt eftir að-
stæðum sem upp geta komið. Að sjálf-
sögðu mun svo búnaðurinn verða not-
aður ef upp koma veikinda- eða slysa-
tilfelli.
Opnar fleiri möguleika
Jón Bragi segir markmiðið að setja
saman pakka til að bjóða útgerðum og
í honum verður bæði hugbúnaður og
vélbúnaður sem nauðsynlegur er.
„Með þessum tækjum verður hægt að
taka stafrænar myndir, hjartalínurit og
annað sem tengist fjarlækningum.
Hins vegar opnar þetta líka annan
möguleika fyrir útgerðirnar og hann er
sá að hægt er að taka stafrænar ljós-
myndir um borð, t.d. varðandi bilanir,
og senda þær í land til að fá ráðlegg-
ingar um viðgerðir. Þannig mun bún-
aðurinn líka vinna sem samskiptabún-
aður milli skips og útgerðar," segir Jón
Bragi en að hans mati eru útgerðar-
menn áhugasamir um að nýta búnað-
inn til fjarlækninga. Þeir þekki þá erf-
iðu stöðu sem komi upp í veikinda- og
slysatilfellum úti á sjó og taki fagn-
andi tækni sem hjálpi til við slíkar að-
stæður.
„Útgerðarmennirnir skilja vel þörf-
ina en þeir vilja sjá að þetta gangi upp.
Með þeim prófunum sem nú standa
yfir erum við að átta okkur á hver
þörfin er og hvernig skuli haga sam-
setningu búnaðarins þannig að hann
nýtist sem allra best," segir Jón Bragi.
Sjúkrahús
Þannig eru samskipti skips og sjúkrahúss hugsuö. Með búnaöinum sem Skyn ehf. er aö
setja saman, geta sjómenn sótt sér aimenna lœknisþjónustu utan afmiðum. Mikilvcegasti
þátturinn kann þó að vera í slysatilfellum þegar fyrstu viðbrögð geta skipt öllu máli.
mir 13