Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.1998, Side 14

Ægir - 01.08.1998, Side 14
Hvaða tilgangi þjónar nýja GMDSS fjarskiptakerfið? Skammstöfuninni GMDSS hefnr œ oftar brugðið fyrir í auglýsingum og umfjöllunum um skip á síðustu misserum og ekki að undra. Hér er um að rœða nýtt alþjóðlegt neyðar- fjarskiptakerfi sem skylda er að taka að fidlu upp í íslenska flotanum þann 1. febrúar nœstkomandi. Og þessi breyting á ekki aðeins við um ís- lenska flotann heldurgildir sama lokadagsetning um allan heim. Mörg skip í flotanum hafa nú þegar búið sig undir breytinguna og tekið um borð þann tœkjabúnað sem nýja kerfið krefst en fjöldamargar litgerðir eiga þegar eftir að stíga þetta skref. GMDSS stendur fyrir enska heitið Global Maritime Distress Safety Sy- stem og segja má að hér sé jöfnum höndum um að ræða kerfi sem er ör- uggt neyðarfjarskiptakerfi og nýtist jafnframt til almennra fjarskipta. Kerfið byggir á sjálfvirkni í fjarskipt- um með aðstoð gervihnatta og jarð- lægra fjarskiptakerfa. Samkvæmt reglugerð um GMDSS fjarskiptabúnað er hafsvæðum heimsins skipt í fjögur svæði, þ.e. Al, A2, A3 og A4. Mismun- andi miklar kröfur eru gerðar til skipa og báta varðandi fjarskiptabúnað eftir því á hvaða hafsvæði þau sigla. Bún- aðurinn vinnur þannig að sé skip statt í neyð þá er sett af stað ferli þar sem bæði er send út neyðartilkynning á VHF bylgju, sem og um gervihnött og til strandarstöðva. Með þessum fjöl- þættu sendingum, sem eru sjálfvirkar, á að tryggja að neyðartilkynning kom- ist skýrt og greinilega á leiðarenda. Skip búin GMDSS búnaði á sama haf- svæði og það skip sem sendir út neyð- arkall, les strax úr sendingunni og á að geta séð samstundis um hvaða skip er að ræða og hvar það er statt. Allt á þetta að gera að verkum að á neyðar- stundu geti hjálp borist eins fljótt og nokkur kostur er. T íslenskt rœkjuskip að veiðum við ísröndina djúpt norður af landinu. GMDSS búnaðinum er cetlað að auka öryggi sjófarenda á neyðarstundu og tryggja að neyðartilkynningar komist örygglega á leiðarenda, jafiit til strandarstöðva um gervihnött, sem og til skipa á Sama hafsvaeði. Ljósmynil: Þorgeir Baldursson 14 MGm

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.