Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1998, Blaðsíða 16

Ægir - 01.08.1998, Blaðsíða 16
Fjarskipti í sjývarútvegi T Tið tókum upp samvinnu við Rad- v íómiðun og gerðumst söluaðilar fyrir Sailor GMDSS fjarskiptabúnað. Aðurgátum við boðið einstaka hluti í GMDSS búnaði en með tilkomu Sail- or tœkjanna getum við boðið lieild- stœðar lausnir á þessu sviði. Ég held að enginn vafi leiki á að viðskiptin með GMDSS-búnað verða mikil á nœstu mánuðum og líklegt að þau nái hámarki í janúar," segir Reynir Guðjónsson, framkvæmdastjóri lijá ísmar í Reykjavík. Haitn segir að hjá ísmar hafi verið lögð mikil vinna í að yfirfara reglugerðina um GMDSS- neyðar- og öryggiskerfið, sem verður lagaskylda í skipum frá 1. febrúar, og greina úr henni aðalatriðin þaimig að kaupendur fái þatutig gleggri mynd afþeim ákvœðum sem þarfað uppfylla. „Ég held að það verði mjög fáir sem fari út í að lesa sig í gegnum reglugerð- ina, enda er hún mjög flókin og viða- mikil. Við bendum okkar viðskiptavin- um á að senda til okkar upplýsingar um skip sín, á hvaða hafsvæðum þau verða, hvernig þau eru búin fjarskipta- tækjum og þá munum við senda til baka upplýsingar og tilboð um lausnir. Við höfum búið okkur vel undir að þjónusta viðskiptavinina á þennan hátt þannig að þeir þurfi ekki að leggj- ast yfir þann frumskóg sem reglugerð- in er," segir Reynir. Söluhámark GMDSS-tækja upp úr áramótum „Ég á ekki von á að almennt muni út- gerðaraðilar fara af stað í GMDSS-væð- inguna fyrr en um næstu áramót. Ein- hverjir munu kannski setja þessa fjár- festingu á yfirstandandi rekstrarár en væntanlega horfa flestir á næsta ár. Janúarmánuður verður sýnilega undir- lagður hjá okkur vegna þjónustu við GMDSS." Reynir segir að meginmarkið reglu- gerðarinnar um GMDSS séu skýr. Tryggja eigi að neyðartilkynningar skipa heyrist örugglega til allra nær- staddra skipa og strandarstöðva, án til- lits til á hvaða hafsvæði skipin eru. Ekki sé annað hægt að segja en til- koma þessa kerfis sé stórt skref fram á við. GMDSS kerfið er stórt skref framávið - segir Reynir Guðjónsson, framkvœmdastjóri Ismar Reynir Guðjónson, framkvæmdastjóri Ismar og Birgir Benediktsson, viðgerðarstjóri, spá miklum viðskiptum í GMDSS tækjum á komandi mánuðum. Mynd: Haukur Snorrason „Hins vegar eru menn ekki sam- mála um allar leiðir sem farnar eru í þessum efnum vegna þess að frá þeim tíma sem reglugerðin var sett hafa komið fram nýjungar í fjarskiptamál- um og eru að koma fram um þessar mundir. GMDSS-kerfið hefur vissulega marga kosti en mér finnst það skiljan- legt að kaupendur horfi einnig á þró- unina i gervihnöttum og gervihnatta- símum," segir Reynir en bætir við að vegna samkeppninnar um allan heim í sölu á GMDSS búnaði þá sé ekki óraunhæft að reikna með að hún skili einhverjum verðlækkunum fram und- ir 1. febrúar 1999 þegar öll skip eiga að uppfylla reglugerð og vera með full- komið GMDSS kerfi um borð. Á fjar- skiptasviðinu hefur fsmar boðið GMDSS neyðarhandtalstöðvar, rat- sjársvara og Inmarsat C tæki, auk þess að selja siglinga- og fiskleitartæki fyrir skip og báta. 16 ÆGÍU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.