Ægir - 01.08.1998, Qupperneq 18
Fjarskipti i sjávarútvegi
Tölvupósturinn er
fj arskiptamáti framtíðarinnar
- segir Sigurbjörn Sigurðsson, stýrimaður á frystitogaranum Margréti EA, sem
notar tölvupóst til að hafa samband heim til fjölskyldunnar
Sigiirbjörn Sigiirðsson, stýrimaður
á frystitogaranum Margrétinni
EA, er eiiui þeirra sjómamia sem tek-
ið hafa tölvutœknina upp á sína
arma á sjónum og nýtt möguleika
hennar til að halda uppi sainbandi
við fjölskylduna í laitdi. Hvar sem
skipið er statt í heiminutn getur Sig-
urbjörn sent tölvupóst lieim til fjöl-
skyldunnar, eða tekið á móti skeytum
að heiman, og hann segir tölvupóst-
inn þann samskiptamáta sem sjó-
menn muni örugglega nýta sér í vax-
andi mceli í framtíðinni. Um þriggja
ára skeið hefur tölvupósturinn verið
nýttur til samskipta skipsins við út-
gerðina, Saniherja hf., og að niati Sig-
urbjörns getur ekki orðið annað en
vöxtur og þróun í framtíðinni t upp-
lýsingaflœðinu um tölvur oggervi-
hnetti milli skipa og útgerðar í landi.
„Ég hef notað tölvupóstinn sem
samskiptaform allt frá því sú tækni
varð möguleg á sjónum. Fjarskiptaþró-
unin hefur verið til batnaðar með
hverju ári og sér í lagi hefur þetta
gengið vel síðasta árið," segir Sigur-
björn í samtali við Ægi.
Á heimili sínu hefur Sigurbjörn
tölvu með tengingu við Internetið og
um borð í Margrétinni hefur hann að-
gang að tölvu með til þess gerðum
hugbúnaði að hægt er að senda tölvu-
póst í gegnum gervihnött. Það eina
sem hann þurfti að gera sérstaklega
var að skrá sig sem notanda að In-
marsat gervihnattakerfinu en það
gerði hann hjá fyrirtækinu Radíómið-
un í Reykjavík. Eftir það ganga sam-
Viö tölvuna heima. Sigurbjöm segir að það komist fljótt upp í vana að skrifa stutt bréf
sem segi þó mikið en þetta atriði skiptir máli þar sem gjald er innheimt fyrir hvern send-
an staf um gervihnött. Mynd: ióh
skiptin vel fyrir sig, tölvupósturinn fer
frá skipinu um gervihnött og niður í
jarðstöð í Hollandi sem skráir sending-
una, stafafjölda og aðrar upplýsingar
og sendir póstinn síðan áfram eftir
jarð- og sæstrengjum til íslands og
beint í tölvuna á heimili Sigurbjörns á
Akureyri. Síðan koma reglulega inn-
heimtuseðlar fyrir notkuninni, mælt
eftir fjölda stafa sem sendir eru í tölvu-
bréfunum og þannig segir Sigurbjörn
að kerfið gangi mjög einfalt og
áhyggjulaust fyrir sig.
Tölvupóstsamskipti
við útgerðina
„Það er orðið mjög algengt að útgerðir
hafi samskipti við sín skip með tölvu-
pósti og til að mynda hefur Samherji
haft samskipti við sín skip með tölvu-
pósti síðan 1995. Ég sé fyrir mér að í
nánustu framtíð geti orðið mjög mikil
þróun í því hvernig þessi tölvutækni
er notuð. í dag sendum við aflaskýrsl-
ur með tölvupósti í land en mér kæmi
ekki á óvart að innan tíðar gætum við
sent skrár úr bókhalds- eða upplýs-
18 ÆGIR