Ægir - 01.08.1998, Qupperneq 26
Frystikerfi ehf:
viðgerðum og endurbyggingu á stimp-
il- og skrúfupressum frá framleiðend-
um eins og Howden, Sabroe, Hall,
Hitachi, Bitzer, Grasso, Stal, Frick og
Gram. Lögð er áhersla á sölu á ein-
stökum hlutum, svo sem frysti- og
kælipressum, plötufrystum, lausfryst-
um, eimsvölum og dælukútum. Þá
getur fyrirtækið nú boðið RSW sjó-
kælibúnað í mörgum stærðum fyrir
flestar tegundir kælimiðla, svo sem R-
22 og ammoníak.
Frystikerfi ehf. annast uppsetningu
á nýjum kerfum og einstökum hlutum
í eldri kerfi auk þess sem lagt er mat á
eldri kerfi og þau endurbyggð. Jafn-
framt sjá starfsmenn um hönnun og
almenna ráðgjöf varðandi frysti- og
kælikerfi. Fyrirtækið hefur nú þegar
tekið að sér nokkur stærri verkefni.
Það hafði m.a. eftirlit með niðursetn-
ingu frystibúnaðar og frystitækja í
Hólmadrang ST þegar skipið var í
bréytingum í Póllandi og í sumar
unnu starfsmenn þess við endurbygg-
ingu frystibúnaðar í frystitogaranum
Orra ÍS frá ísafirði.
N'ýtt fyrirtœki á sviði frysti- og
kœlikerfa, Frystikei-fi ehf., tók til
starfa að Vagnlwfða 12 í Reykjavík
fyrir skömmu. Fyrirtœkið er alhliða
þjómistufyrirtceki og hafa allir starfs-
menn þess mikla reynslu á sviði
frysti- og kcelikerfa. Stofnendur
Frystikerfa ehf. eru Vélsmiðjan Þryin-
ur ehf. á ísafirði og þeir Steinar Vil-
hjáhnsson, Vésteinn Marinósson og
Jón Valdimarsson. Nú á vordögum
gekk Hafþór Svendsen inn í fyrirtœk-
ið, en hann vann áður ásaint þeim
Steinari, Vésteini og Jóiti hjá Kvcern-
er á íslandi. Þeir félagar starfa allir í
Reykjavík en í lok júní tekur til
starfa hjá fyrirtcekinu maður með
aðsetur í ísafirði.
Hið nýja fyrirtæki einbeitir sér að
sölu á nýjum frystibúnaði og hefur
verið gengið frá samstarfssamningi við
Þyangen Kulde AS, SES International
og SES í Noregi. Samningurinn tryggir
að Frystikerfi geta boðið frysti- og
kælivélar frá því heimsþekkta fyrirtæki
HOWDEN. Þær vélar eru ýmist gerðar
fyrir ammoníak, freon eða aðra þekkta
kælimiðla.
Frystikerfi ehf. á nú þegar á lager
sérstök viðgerðarsett í Howden vélar.
Einnig er fyrirtækið með á Iager alla
helstu varahluti fyrir kæli- og frystivél-
ar. Má þar nefna ásþétti, smurolíusíur,
plötufrystaslöngur, R-22 kælimiðil og
kælimiðilsloka. Vegna milliliðalausra
sambanda við erlenda framleiðendur
og varahlutasala getur fyrirtækið út-
vegað varahluti fyrir vélbúnað á mjög
skömmum tíma og á góðu verði.
Hjá Frystikerfum ehf. er nú þegar
veitt alhliða þjónusta fyrir ofangreind-
an búnað og hjá fyrirtækinu er 24
klukkustunda þjónusta allan ársins
hring. Starfsmenn hafa mikla reynslu í
Stofnendur Frystikerfa ehf.: (f.v.) Vésteinn Marinósson, Steinar Vilhjálmsson og Jón
Valdimarsson.
Leiðrétting
í júníblaði Ægis var mynd með
grein Jóns t>. Þórs, sagnfræðings, og
í myndatextanum var ranglega sagt
að myndin væri tekin í Ólafsvíkur-
höfn. Hið rétta er að myndin er
tekin við hina nýju smábátabryggju í
Grundarfjarðarhöfn og leiðréttist
það hér með.
Nýtt fyrirtæki á sviði
frysti- og kælikerfa
26 AGIU