Ægir - 01.11.1998, Page 16
Glæst skip í eigu
Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf.
Hóhnaborg SU-11.
Guðrún Þorkelsdóttir SU-211.
Jón Kjartansson SU-111.
Nýjasta skipið í flota HE, Votaberg SU-
10.
nú ein fullkomnasta loðnuverksmiðja
landsins. í sumar var lokið við endur-
byggingu á löndunarhúsi og tækjum
við loðnulöndunina. í verksmiðjunni
er hægt að bræða 900 - 1100 tonn á
sólarhring og þrjár gerðir af mjöli eru
framleiddar. Geymslurými fyrir hrá-
efni til bræðslu er mikið á Eskifirði,
hægt er að geyma þar allt að 25.000
tonn til bræðslu, 7000 tonn af mjöli
og 5000 tonn af lýsi.
Hólmatindur og Hólmanes, skuttog-
arar HE, veiða jöfnum höndum bolfisk
og rækju og nótaskipið Guðrún Þor-
kelsdóttir hefur einnig stundað rækju-
veiðar. Bolfiskvinnsla hjá fyrirtækinu
hefur dregist nokkuð saman en rækju-
vinnsla og vinnsla á uppsjávarfiski til
menneldis aukist að sama skapi. Vegna
þessa keypti félagið fiskverkunarhús á
Eskifirði og gerði upp og í því er nú
hægt að frysta um 170 tonn á sólar-
hring. Samtals er því frystigeta á loðnu
um 250 tonn á sólarhring.
Þrátt fyrir samdrátt í bolfiskvinnslu
starfa að meðaltali 80 manns í frysti-
húsinu og hefur með skipulagningu á
veiðum og samvinnu við frystihús í
nágrannabyggðarlögum tekist að
halda uppi mjög stöðugri vinnu í hús-
inu. Saltfiskverkun er alltaf nokkur hjá
HE og fer hún fram í tveimur húsum.
Afli og aflaverðmæti
Heildarafli skipa Hraðfrsytihúss Eski-
fjarðar var 127.215 tonn í fyrra. Þar af
var botnfiskafli aðeins 1.992 tonn,
rækja 1.565 tonn, kolmunni 1.061
tonn, norsk-íslensk síld 15.922 tonn
og loðna 106.675 tonn. Aflaverðmæti
skipanna var 946 milljónir króna.
Heildarhráefniskaup félagsins í fyrra
voru 164.240 tonn, sem er um tíu þús-
und tonnum minna en árið 1996.
Loðnuaflinn var nánast sá sami á milli
ára en munurinn skýrist af minni síld-
arafla og minni kaupum á iðnaðar-
rækju.
Helstu markaðslönd Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf. fyrir bolfiskafurðir eru
Bandaríkin, Bretland og Frakkland.
Fryst síld og loðna fara aðallega til Jap-
ans og annarra Asíulanda auk Rúss-
lands. Fryst rækja seist mest til Dan-
merkur og Bretlands auk nokkurra
annarra Evrópulanda. Stærstu mjöl- og
lýsismarkaðanir eru í Bretlandi og Nor-
egi.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf.
annast sölu á öllum frystum afurðum
Hraðfrystihúss Eskifjarðar. Sölusam-
band íslenskra fiskframleiðenda hf.
annast sölu á öllum saltfiski sem fram-
leiddur er hjá félaginu og fyrirtækið
Fiskimið hf. sér um sölu á lýsi og
mjöli.
Sjóður fyrir efnalitla námsmenn
Á síðasta aðalfundi Hraðfrystihús Eski-
fjarðar lagði Aðalsteinn Jónsson fram
tillögu um að stofna sjóð til styrktar
efnalitlu ungu fólki á Eskifirði til fram-
haldsnáms þar. Var tillagan samþykkt
einróma. Stofnupphæðin var ein millj-
ón króna og mun félagið leggja árlega
sömu upphæð til sjóðsins. Jafnframt
var sjóðsstjórninni falið að afla meira
fjár til sjóðsins. Haukur Björnsson, for-
maður stjórnar sjóðsins, segir að það
hafi gengið vel, það sem af sé árinu
hafi fengist loforð fyrir sex til sjö
hundruðum þúsunda króna í sjóðinn.
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum var í
haust en í sumar var auglýst eftir um-
sóknum. Alls bárust 20 umsóknir og
veittir voru 7 námsstyrkir. Aftur var
auglýst í október s.l. og er umsóknar-
frestur til 1. desember. Þegar eru
komnar inn nokkrar umsóknir og seg-
ist Haukur eiga von á fleirum.
Þessi sjóðsstofnun Hraðfrystihúss
Eskifjarðar er sennilega einsdæmi á
landinu. Segir Aðalsteinn að hann hafi
með þessari tillögu sinni viljað greiða
götu efnalítilla námsmanna. Hann
þekki það af eigin raun að vera fátæk-
ur.
Fjárfestingar
Á síðasta ári var fjárfest í fiskiskipum
fyrir 268 milljónir króna, í vélum,
tækjum og áhöldum fyrir 107
16 A:GIR