Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 15
BÚNAÐARRIT
13
Tjörupappaplötur, sem smeygt er á
jurtirnar niður við moldina til að varna
flugunni að verpa, reyndust einnig vel.
Þessar plötur eru hentugar í litlum,
sæmilega skjólgóðum görðum. Sót og
naftalín gera nokkurt gagn, sé því
dreift öðru hvoru kringum jurtirnar,
eða naftalínplötur lagðar um þær. Gott
er að herða á vextinum með áburðarvatni. Jurtirnar
verða þá kraftmeiri og þolbetri en ella. Maðkurinn
ásækir allskonar krossblóm. Varist að flytja rófur,
kálhausa, næturfjólu, Levkoj eða önnur krossblóm
af sýktu svæðunum i heilbrigð héruð.
Hjartaarfi getur verið varasamur, því flugurnar
verpa einnig við hann. Samtök verða að vera með
varnirnar. Mundi heppilegast að vanir menn gengju
um að leita kálflugueggjanna í júní—júlí og vökvuðu
fyrir alla t. d. hér í Reykjavík. Gætu slikar ráðstafanir
heft mikið útbreiðslu flugunnar. Um útrýmingu þýðir
varla að ræða. Þyrfti þá að banna alla krossblóma-
rækt á sýklu svæðunum nokkur ár, ef nokkur von
ætti að vera. Þar sem engin varnarráð voru viðhöfð,
eða ekki á réttum tíma, mátti heita að maðkurinn
gereyddi blómkálinu, eyðilegði mikið af hvítkáli og'
toppkáli og skemmdi grænkál og rófur. Snemmvaxn-
ar hreðkur sluppu, sömuleiðis þróttmesta ltálið, sem
fyrst náði góðum vexti. Kálið má vel verja, en lyfin
verða of dýr við rófur og ekki hættulaust að nota
þau lil vökvunar, þegar verulegar rófur fara að mynd-
ast, því eitrið getur sezt utan á börkinn. Þarf að flysja
slíkar rófur vandlega. Á haustin þarf að flytja allar
kálleifar burtu úr sýktum görðum. Geta púpurnar
annars lifað í kálinu að vetrinum, einkum í rótunum.
Ef unnt er skal flytja kálreitinn á nýjan stað. Á Suð-
urjandi að minnsta lcosti, ætti að aulca stórum ræktun
gulróta. Gæiu þær að miklu leijti lcomið í stað gul-
Kálfluguegg.
Stækkuð 6-faIt.