Búnaðarrit - 01.01.1940, Side 33
B Ú N A Ð A R R I T
31
Á þessu hausti mun Torfi liafa farið til Reykja-
vikur og dvalið þar yfir veturinn, við nám, til undir-
búnings undir siglinguna, og siglt svo um vorið til
Skotlands.
Á fundi félagsins 13. júní 1866, sem haldinn var að
Miðhúsum, þótt hann eklci væri lögmætur sökum þess
hve fáir félagsmenn voru mættir, lagði Skaptason
iæknir fram bréf frá Torfa, sem fundarmönnum hefir
eflaust þótt talsvert til koma, því forseti lofaði fund-
inum því „að innbúum hrc[)panna yrði skýrt frá inni-
haldi bréfs þessa.“ Jafnframt skýrði forseti frá, að
Norður- og Austuramtið hefði veitt 50 rd. styrk af
búnaðarsjóði amtsins til siglingar Torfa og afhenti á
fundinum, alþm. Ásgeiri Einarssyni téða 50 rd. í
áður nefndu skyni. Svo og gat forseti þess að amtið
hefði skrifað Landbúnaðarfélagi Dana og skorað á
það að veita 200 rd. styrk til siglingar Torfa. Á það
er ekki minnst hvort amtmaður hefir skrifað þetta af
eigin hvöt eða eftir ósk Bún. Hún. eða einhvers lir
stjórn þess.
Á fundi 11. júní 1867, skýrir forseti frá, eftir fram-
lögðu bréfi frá amtmanni Havslein, ,að Landbúnaðar-
íelagið í Danmörku, hefði veitt 200 rd. styrk til sigl-
ingar Torfa til Skotlands. Samþykkti fundurinn i
einu hljóði, að fela l'orseta og Jósel' lækni Skapta-
son, að votta amtmanni Havstein viðurkenningu fyrir
alla aðstoð hans óg umönnun fyrir hag félagsins.
Jafnframt kaus fundurinn hann í einu hljóði fyrir
heiðursfélaga. Það er því auðsætt að fundurinrt hefir
litið svo á, að styrkurinn frá Dönum til siglingar
Torfa væri fyrst og fremst ötulli framgöngu amtmanns
Havstein að þaklca.
Það verður því að álita að Torfi hafi fengið þessar
fjárhæðir frá Bún. Hún. sjálfu tii siglingarinnar og
fyrir þess tilstilli, með aðsloð góðra manna: