Búnaðarrit - 01.01.1940, Side 39
BUNAÐARRIT
37
3. ágúst 1877 var útbýtt 6 verðlaunum til Guðrúnar
Þorgrímsdóttur á Hjallalandi og Tómasar Jónssonar í
Brekkukoti 30 kr. til hvors, Ingvars Þorsteinssonar í
Sólheimum og Jóns Pálmasonar í Stóradal kr. 20 til
hvors og til Jónasar Erlendssonar á Tindum og Lár-
usar Einarssonar á Ásgeirsá kr. 10 til hvors þéirra.
13. febr. 1879 veitti félagið Eggerti Jónssyni á Ána-
slöðum 30 króna vcrðlaun fyrir jarðabætur. Loks var
hinum síðustu verðlaunum af félagsins hálfu úlbýtt
28. ágúst 1880 til B. G. Blöndals í Hvanimi kr. 30
og Magnúsar Magnússonar i Holti kr. 20.
2. Kaup og kynning á ýmsum verkfærum: Var því
máli fyrst hreyít á aukanefndarfundi að Geitaskarði
5. nóv. 1875. Þá var forseta falið að panta handa bún-
aðarfélaginu 24 skóflur, 11 mykjukvíslar, 4 gaffla,
tvenn sléttunarverkfæri Guðbrands Stefánssonar og
1 hjólbörur. Ennfremur pantaði Erlendur Pálmason
fyrir hönd Búnaðarfélags Svínavatnshrepps 8 skóflur,
1 gaffal og 1 mykjukvísl, sem hann bað l'orseta að út-
vega um leið. Notkun á áhöldum þessum var svo inn-
leidd í sýslunni á þann hátt, að þau voru seld þeim,
sem þess óskuðu, og svo voru verðlaunin greidd í á-
höldum eftir því sem félagið átli þau til í það og það
sinni.
3. júní 1877 er félagið biíið að eignast kerru, aktygi,
plóg og herfi, eflaust til þess að kynna þessi verkfæri.
Enda var kerran og plógurinn seld á árinu. 24. júní
1878 er félagið talið að eiga von á, með sumarskipinu,
töluverðu af jarðyrltjuverkfærum. Þá átti það aktygi,
herfi, 1 skóflu og eina kvísl. Þá er það talið að eiga
á ýmsum stöðum sjóð, sein nam kr. 704,57. Þar af
var óinnheimt félagsgjöld kr. 106,00, og hjá féhirði
aðeins kr. 40,10.
Því miður virðist aldrei hafa verið hugsað rétt vel
um fjárhag félagsins. T. d. greiddust félaginu aldrei
vextir af sjóði þess fram yfir 1880, ef ekki lengur,