Búnaðarrit - 01.01.1940, Blaðsíða 41
BÚNAÐARRIT
39
síðar bónda i Broddanesi, til félagsins það sumar.
Hann mun hafa lœrt í Ólafsdal.
Árið 1883 voru 2 búfræðingar frá Ólafsdal starfs-
menn félagsins á sama hátt og hinir búfræðingarnir
voru. Það voru þeir Sigurður Oddleifsson, ættaður
af Vesturlandi og Jón Lárusson frá Ásgeirsá í Viði-
dal.
Árið 1884, va r enn ákveðið að ráða 2 búfræðinga
til þess að vinna hjá félagsmönnum fyrir félagið.
Var Sigurður Oddleifsson ráðinn áfram af sýslunefnd-
inni, jafnframt því sem hún léði honum af sjóði fé-
lagsins kr. 200,00 lil j)ess að kaupa fyrir plóg, herfi og
aktygi. Skyldi hann vinna þá skuld af sér ])á um
sumarið, eða hún reiknuð upp í kaup hans. Þá mun
Sigurður hafa verið orðinn búsettur i Torfalæltjar-
hreppi, því 12. maí þá um vorið, var hann kosinn
formaður búnaðarfélags, sem þann dag var stofnað
þar í hreppi. Hefir Sigurður eflaust verið mikill hvata-
maður ])ess félagsskapar, ef ekki aðal-hvatamaður-
inn. Á þeim sama sýslufundi var þremur þar til kosn-
um mönnum falið að ráða hinn starfsmanninn fyrir
félagið. Voru til þess kosnir Lárus Blöndal sýslumað-
ur, Ásgeir Einarsson á Þingeyrum og Páll Pálsson
Dæli. Sönau mönnum var falið að skipta vinnu bú-
fræðinganna á milli félagsmannanna.
Þetta virðist hafa verið hin síðasta starfsmanna-
ráðning félagsins. Ekki virðist nefndinni hafa orðið
ágengl með að ráða hinn búfræðinginn til félagsins.
Þetta sama ár 1884 voru stofnuð 3 hreppabúnaðar-
félög í sýslunni og 2 árið eftir til viðbótar 4 slíkum
innan sýslunnar, sem eldri voru. Munu þá fáir félagar
i Bún. Hún. liafa átt heima utan þeirra 9 hreppa, sem
nú höfðu stofnað búnaðarfélag, hver út af fyrir sig.
Hefir eflaust við þetta stórfælckað félagsmönnum í
Bún. Hún. Mun þá hafa þótt réttara að hvert hreppa-
búnaðarfélag réði sér starfsmenn sjálft. Auk þess