Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 46
44
BÚNAÐARRIT
Vatnsdal til að kaupa sláttuvél, þannig að féð standi
vaxtalaust í 3 ár en endurgreiðist þá sýslunefndinni.
— Félagið var stofnað og hefir eflaust fengið lánið
og endurgreitt það.
Árið 1902 samþykkti sýslunefndin að lána Magnúsi
Þ. Þorlákssyni frá Vesturhópshólum 100 krónur af
sjóðnum, rentulaust í 3 ár til utanfarar, og ári síðar
að þessar 100 kr. mæltu ganga til Þorláks föður hans
með sömu kjörum.til þess að kaupa jarðyrkjuverk-
færi. Árið 1905, veitti sýslunefndin af sjóði félags-
ins, krónur 200,00 til stofnunar gróðrarstöðvar í
kringum kvennaskólann á Blönduósi og árið 1907
veilti hún svo öllum eftirstöðvum sjóðsins til sömu
gróðrarstöðvar. Þar með var ráðstafað hinum síðustu
leifum Bún. Hún., að undanskyldum bókum þess og
skjölum.
V. KAFLI
Niðurlagsorð.
Af þessu söguágripi sést, að Bún. Hún. hefir þótt
það yrði ekki langlíft, haft mikla þýðingu fyrir ís-
lenzka búnaðarmenningu, auk þess sem upp af því
spratl óbeint ýmiskonar annar félagsskapur. Það er
elst allra þeirra félaga á Norðurlandi, sem náð hafa
yfir heilt sýslufélag, að því er mér er frekast kunnugt.
Fyrsta árið voru félagsmennirnir að vísu ekki nema
33 og kölluðust þeir allir stofnendur þess, enda þótt
nokkrir þeirra væru ekki á stofnfundinum. Flestir
urðu félagarnir 188, árið 1868—1869. Voru þeir þá
dreil'ðir um alla sýsluna fram lil freinstu dala og út
á yztu annes sýslunnar. Er upp af starfsemi félagsins
runnin óbeint ýms félagsleg þróun, meðal annars í
verzlunarmálum l. d. með stofnun Húnaflóafélagsins,
sem stofnað var að Gauksmýri haustið 1869, og stofn-
un kvennaskóla Húnvetninga, sem nú heitir Kvenna-