Búnaðarrit - 01.01.1940, Blaðsíða 75
BÚNAÐARRIT
73
I febr. og snemma í apríl 1936 er fénu gefið þetta
meðal, og það svelt sólarhring undan og eftir inn-
gjöf. Um vorið er féð hraust og þá laust við sóttar-
plágu. Þá valcna þessar spurningar. Hve mikið gagn
hafði fé mitt af inngjöfinni? Borgaði inngjöfin sig?
Hvað borgar sig að gefa oft eða þétt inn? Er ávinn-
ingur að gefa inn um leið og fénu er sleppt til fjalls?
Hvenær borgar sig fyrst að gefa lömbunum?
Til að reyna að svara þessum spurningum tók ég
10 gemlinga, sem ég skipti í tvo flokka jafn þunga.
Öðrum flokknum gaf ég inn 30. maí 1936. 10. nóv.
vigta ég svo alla gemlingana, og er ormalyfsflokkur-
inn þá 6 kg þyngri en hinn. 12. des. vigta ég þá aftur.
Þá eru ormalyfsgemlingarnir orðnir 10 kg þyngri,
og þá gef ég þeim aftur ormalyf. Síðasta febrúar
1937 vigta ég þessa tvo hópa af veturgömlu ánum
enn, og þá er ormalyfsflokkurinn orðinn 14 kg þyngri
cn samanburðarflokkurinn, og hélst þessi þyngdar-
munur yfir marz og apríl.
28. jan. 1937 vigta ég 12 lömb og skipti þeim í tvo
jafna flokka. Öllum þessum lömbum hafði verið gefið
ormalyf 12. des. 1936. I janúar og febrúar héldust
flokkarnir jafn þungir. Síðasta febrúar gef ég svo
öðrum flokknum inn, en hefi hinn til samanburðar.
1 apríl vigta ég svo búða flokkana. Kom þá i ljós að
flokkurinn sem ekki hafði fengið inngjöf í febrúar
hafði lézt um 19 kg. Að rýrnun var í þessum lömbum
var sjáanlegt löngu fyrr, enda höfðu þrjú af þeim
fengið skitu. Tvö þeirra læknaði ég með tóbaki, en
einu þeirra sem hafði lézt um 5 kg gaf ég tvo skammta
af ormalyfi og tólc það frá til að bata það. Yfir apríl-
mánuð þyngdist svo þetta lamb um 6,5 kg. Þyngdar-
aukinn er auðvitað ekki allur hold, en hann sýnir
að lystin er komin aftur og þar með skilyrðin til að
gela lekið fóðri. Mánuðina febrúar og marz stóðu