Búnaðarrit - 01.01.1940, Blaðsíða 106
104
BÚNAÐARRIT
maður og brautst í miklum og margvíslegum fram-
kvæmdum á Hólum. Var breytt um fyrirkomulag
kennslu á ýmsan hátt. Fjölgaði þá mjög nemend-
um.
Páll Zóphóníasson var skólastjóri á Hólum 1920
—1928. Steingrímur Steinþórsson 1928 til 1935 og
Kristján Karlsson, frá 1935. Alltaf hefir verið haldið
áfram að umbæta jörð og bú á ýmsan hátt. Allmiklar
breytingar hafa orðið á fyrirkomulagi skólans yfir
þetta tímabil, en sem ekki er tími til að koma hér
frekar inn á. Til 1931 var búið rekið á kostnað og
ábyrgð einstakra manna, oftast skólastjóranna.
Hvað hefir þá verið gert á Hólum, þau 58 ár, sem
liðin eru siðan bændaskóli var reistur þar? Hvað
heíir verið gert til þess að reisa Hóla úr þeim rúst-
um, sem þeir voru komnir i, og hel'ja staðinn lil
forns gengis og virðingar? Ég skal með örfáum orð-
um nefna hið helzta, en mjög verður að fara fljótt
yfir sögu.
Fátt stendur fornra bygginga á Hólum. Gamli bær-
inn, biskupssetrið, er fyrir löngu jafnaður við jörðu
og er búið að slétta yfir tóftirnar. Þó vita menn
nokkurnveginn hvar bærinn stóð og um húsaskipun.
Hin einu sýnilegu tákn hins forna bisltupsseturs eru
öskuhaugar tveir, afarstórir, litlu neðar en kirkjan.
í tíð séra Benedikls Vigfússonar, var byggður bær
á Hólum, árið 1854. Stendur hann enn með sömu
ummerkjum, að mestu, enda var hann ramger að
viðum. Mun hann geta staðið lengi ennþá. Dómkirkj-
an er frægast hús á Hólum, byggð um 1760, eins og
áður er nefnt. Hin síðustu ár hefir verið unnið að
því að klæða hana í sinn forna búning, eftir því sem
unnt er. Hefir mikið áunnizt í því efni, þótt margt
sé ógert, einkum að endurheimta forna gripi kirkj-
unnar, sem úr landi hafa verið fluttir.