Búnaðarrit - 01.01.1940, Síða 107
B Ú N A Ð A R R I T
105
Þess er áðnr getið, að Herniann Jónasson byggði
skólahús mikið á Hólum, rétt eftir 1890. Hann reisti
og fjárhús rammger, fyrir um 150 fjár. Slanda þau
enn og eru notuð. I skólastjóratíð Sigurðar Sigurðs-
sonar var hafizt handa um húsabyggingar í stærri
stíl, en áður hafði þekkst. Árið 1910 var reist skóla-
hús mikið úr steinsteypu og 1912 var reist leik-
fimishús. Mun það í þann tíma hafa verið eitt
bezta leikfimishús landsins. Þá byggði og Sigurður
fjós fyrir 20 nautgripi, heyhlöðu og áburðarhús, allt
úr steinsteypu. Mjög vandaðar og fullkomnar bygg-
ingar á allan hátt, eftir því sem þá þekktist. Árið
1926 brann gamla skólahúsið á Hólum. Var þá hafist
handa af skólasljóranum, Páli Zóphóníassyni, um
að endurreisa þau. Árið 1927 var reist hús við hlið
þess sem Sigurður Sigurðsson byggði 1910 og um
leið var hið eldra lnis endurbætt mjög. Hús þetta er
mikið hús og vandað og uppfyllir flest skilyrði, sem
gerð eru lil skólahúsa nú. Þá voru og reist fjárliús
yfir 200 fjár, ásamt lieyhlöðu og votheystófluin, úr
sleinsleypu, mjög vönduð bygging. Mun ekki ofmælt
að það séu einhver beztu fjárhús á landi liér. Árið
1931 var reist mikil bygging á brunarústum gamla
skólahússins, sem brann 1926. Þar er hesthús i'yrir
14 hross, heylilaða, áburðarhús og auk þess verkfæra-
geymsla fyrir vélar og verkfæri staðarins, sem ein-
mitt þá voru aukin mikið, um leið og ríkið tók við
rekstri skólabúsins.
Hér hafa aðeins verið nefndar helztu byggingar
Hólastaðar. En sleppt er að nefna allar smærri bygg-
ingar og umbætur, sem fram hafa farið.
í skólastjóratíð Sigurðar Sigurðssonar var hafin
myndarleg trjárækt á Hólum. Trjágarður var settur
á stofn heima við skólahúsið. Er þar nii birki og reyni-
viður 6 m á hæð, auk margvíslegs annars trjágróð-
urs og blómjurta. Þá var og girtur gróðurreitur miklu