Búnaðarrit - 01.01.1940, Blaðsíða 111
BÚNAÐARRIT
109
ar bærinn var reistur 1854, og fékk liinn nýreisti
bær, J)á þetta nafn. Bær þessi er stæðilegur og getur
staðið fleiri hundruð ár enn, sé honum sómi sýndur.
Skólastjórinn á Hólum, sýslunefnd Skagafjarðar og
Skagfirðingar allir, hafa hinn mesta áhuga fyrir þvi
að hær þessi verði varðveittur fyrir ókomnar kyn-
slóðir. Þar ætli að koma upp safni gamalla landbún-
aðarverkfæra og búshluta, sem nú er hætt að nota,
eða verða lögð niður næstu áratugi. Háværar raddir
eru uppi um það, að varðveita eitthvað af gömlum
torfbæjum landsins, þar sem þeir muni hverfa sem
íbiíðir á næstu áratugum. Enginn staður hér á landi
cr jafn sjálfkjörinn til þess að geyma slílcar minjar
eins og Hólar í Hjaltadal. Kernur þar til, jöfnum
höndum, forn frægð staðarins og hlutverk Hóla nú,
að vera skóli og menntastofnun fyrir bændur þessa
lands. Er því heitið á alla Skagfirðinga og aðra vini
og velunnara Hóla að stuðla að því að þessu verði
lirundið í l'ramkvæmd.
Prestur hefir eltki setið á Hólum síðan um 1860.
Mjög virtist það vel til fallið, að Hólar yrðu gerðir
að prestssetri að nýju. Ælti það að verða talið eitt
virðulegasta prestsembætti landsins að vera dóm-
kirkjuprestur á Hólum. Sá prestur, er þar sæti, ætti
að vera launaður svo vel, að hann gæti gefið sig við
fræðiiðkunum, en jafnframt flutt fyrirlestra við skól-
ann. Færi mjög vel á því að minnast á þennan hátt
liins forna kirkjuveldis og tengja þá minningu við
skólann á Hólum og það menningarstarf í þágu ís-
lenzks landbúnaðar, sem þar er unnið að nú. Þá er
og sjálfsagt að halda áfram því verki, sem svo mynd-
arlega hefir verið unnið að siðustu árin, að klæða
dómkirkjuna í sitt fyrra skart, eftir því sem tök eru
til, svo að hún svari til helgi og frægðar staðarins.
Hér hefir verið drepið á fátt eitt, sem Hólar í
Hjaltada,! eiga kröfu á, að unnið sé að, hin næslu