Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 122
120
BÚNAÐARRIT
og þess gætt um fram allt, að það misgangist ekki
í fóðri.
Féð á Svanshóli er tæplega nógu samstætt. Það ber
nokkuð á göllum hjá sumum einstaklingum þess.
Malirnar á því eru yfirleitt of brattar og ekki nógu
holdmiklar. Herðakamburinn er of hár á sumum
einstaklingum á Svanshóli og ullin á nokkrum hluta
ánna er ekki laus við rauðar illhærur. Á hinn hóginn
ber mikið á góðum kostum hjá þessu fé. Það er hold-
gott á bak, ærnar virðast mjólkurlagnar og dilkarn-
ir reynst hafa mjög mikinn fallþunga samanborið
við þyngd á fæti.
Ég tel víst að hægt sé að bæta Svanshólsféð frá
því sem nú er, með heppilegum hrútakaupum til kyn-
bóta. Þarf þá, eins og raunar ætíð, þegar hugsað er
um kynhætur, að reyna að útrýma göllunum, með
því að fá í stofninn einstaklinga, sem eru lausir við
þá galla, sem mest bar á í stofninum. Þegar þeir gail-
ar virðast svo fara þverrandi samfara kynblöndun-
inni og úrvali og kostir koma í ljós í þeirra stað, þá
má oft festa þessa og aðra kosti í kyn, en samtímis
útrýma huldum göllum, með nokkurri skyldleika-
rækt. En þess ber alltaf að gæta, að enginn skapar
kosti með skyldleikarækt, sem ekki eru til í stofn-
inum, þegar skyldleikaræktin er hafin .
Á Svanshóli hefir verið ræktaður nú um nokkur
ár stofn af Þingeyskum uppruna, frá Jóni H. Þor-
bergssyni bónda á Laxamýri. Fé þetta reynist ágæt-
lega og samkvæmt skýrslum búsins gefur það meiri
arð en heimaféð á Svanshóli. Enn er samt of snemmt,
að kveða upp fullnaðardóm um samanburð á þessu
Þingeyska fé og heimafénu. Þarf til þess fleiri ára
reynslu en nú liggur fyrir.
Fé frá Svanshóli hel'ir verið flutt allvíða um land-
ið. Sumstaðar hefir það reynzt vel en annarsstaðar
illa, t. d. í Hriflu í Suður-Þingeyjarsýslu. Þar geklc