Búnaðarrit - 01.01.1940, Side 125
BÚNAÐARRIT
123
Fcð á Stafafelli hefir lengi verið talið gott fé a.
m. k. eftir því sem gerist í A.-Skaptafellssýslu. Það er
að mestu komið út af hinu svo kallaða Norðanfé,
þ. e. fé af gamla Möðrudals- og Jökuldalskyninu. En
talið er að einmitt það fé hafi bætt mest fé í Austur-
Skaptafellssýslu.
Eftir útliti að dæma er Stafafellsféð mörgum góð-
um kostum búið og það virðist mjög réttmætt að
reyna að rækta það og bæta. Nú sem stendur er allt
útlit fyrir að langvarandi skyldleikarækt sé farin að
verða þess valdandi, að féð sé fremur tregt til af-
urða. Reynsla síðustu ára sýnir, að þetta bú gefur
ekki miklar afurðir eftir á að meðaltali, en það get-
ur líka orsakast að einhverju leyti af of lélegu vetr-
arfóðri ánna.
Stafafellsféð er frítt, í meðallagi stórt, fremur
þykkvaxið, hel'ir mikla kynfestu og virðist allþolið
til beitar, en er yfirleitt ekki nægilega holdgott á bak
og er að öllum líkindum fremur seinþroska, en það
getur orsakast meðfram af skyldleikarækt.
Kynbótafé hefir oft verið selt frá Stafafelli og
reynst heldur vel.
Á Brekku var ætlunin að rannsaka, hvort ekki væri
hægt að rækta sæmilega arðsaman stofn af hinu
gamla Skaptfellska fé, sem ýmsir góðir og gegnir
Skaptfellingar töldu að hcfði haft marga mikilsverða
kosti fram yfir það fé, sem nú er víðast ræktað í sýsl-
unni. En fé þar hefir mikið verið blandað blóði við fé
at' Möðrudal og Jökuldal og víðar að. Þeir töldu sum-
ir eins og svo margir bændur gera oft, að allar þess-
ar kynbætur ykju aðeins óhreysti fjárins og gerðu
það fóðurfrekara o. s. frv. Á örfáum bæjum var cnn
við líði fé af þessum upprunalega óblandaða Skapt-
fellska stofni, að menn héldu. Bændum virtist þetta
íe ekki falla eins fyrir ofsókn iðraormanna á árun-
um áður en ormalifið var tekið lil notkunar, eins og