Búnaðarrit - 01.01.1940, Page 132
BÚNAÐARRIT
Búpeningssýniiigar.
Almcnningi til leiíSbeiningar vill BúnaíSarfélag íslands benda ú
eftirfarandi atriði um búpeningssýningar þær, er það heldur úr-
lega, samkvæmt lögum nr. 32, 8. sept. 1931, um búfjárrækt.
A. Nautgripasýningar:
Þær skal halda á 5 ára fresti í hverju nautgriparæktarfélagi
(annarsstaðar ekki), enda liafi lilutaðeigandi svcitarstjórnir, eða
nautgriparæktarfélög, sent B. í. skriflega ósk um sýningu fyrir
lok marzmánaðar ár hvert. — Til verðlauna á sýningum þessum
leggur rikissjóður 50 aura fyrir hvern framtalinn nautgrip á sýn-
ingarsvæðinu, samkvæmt síðustu birtum búnaðarskýrslum, gegn
jöfnu tillagi, útveguðu af sveitarstjórn eða nautgriparæktarfé-
lagi, annarsstaðar frá. — Auk þess greiðast I. og II. verðl. á naut
eingöngu úr ríkissjóði.
B. Hrossasýningar:
Þær skal halda í hverri sýslu landsins þriðja livert ár, enda
hafi hlutaðeigandi sýslunefndir veitt fé til sýninganna og sýslu-
menn tilkynnt félaginu það, ásamt kosningu sýningarstjóra og
dómnefndarmanna, fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. — Til verð-
launa leggur rikissjóður 10 aura fyrir hvert framtalið liross i
sýningarumdæminu, samkvæmt síðustu birtum búnaðarskýrsl-
um, þó aldrci minna en 100 kr. til hverrar sýningar, gegn jöfnu
framlagi úr hlutaðeigandi sýslusjóði.
Auk þess greiðir rikissjóður 50 kr. til viðbótar liverjum I. verðl.
stóðhcstanna. — Jafnframt héraðssýningunum skal gefa eigend-
um fullorðinna stóðhesta lcost á afkvæmasýningum, samkv. nán-
ari ákvæðum laga um húfjárrækt og tilheyrandi reglugerð. —-
. C. Hrútasýningar:
Þær skal lialda í einstökum lireppum 4. hvcrt ár, enda hafi hlut-
aðcigandi sveitarstjórnir scnt félaginu skriflega ósk um sýn-
ingu fyrir júlímánaðarlok ár livert. — Til lirútavcrðlauna leggur
'•íkissjóður 2 aura fyrir hverja framtalda kind í hrcppnum, sam-
kvæmt síðustu birtum búnaðarskýrslum, gcgn jöfnu framlagi,
útveguðu af sveitarstjórn annarsstaðar frá.