Dvöl - 01.01.1938, Síða 38
32
D V ö L
ASTALYFIÐ
Eftir O'Henry
Höfundur eftirfarandi sögu er ekki
aðeins talinn að vera einn af allra
snjöllustu og þekktustu smásagna-
höfunda Ameriku, heldur líka alls
heimsins.
Dvöl hefir áður flutt nokkrar sög-
ur eftir hann og er hans dálítið minnst
í 4. árg., bls. 250.
Lyfjabúðin „Bláa ljósið“ stend-
ur niðri í bæ, milli Bowery og
Fyrstu götu, þar sem skemmst er
bilið milli þessara gatna. „Bláa
ljósið“ lítur stórt á hlutverk sitt
í heimi lyfjanna. Pað selur hvorki
sætindasull né rjómaís, en ef þér
biðjið um verkeyðandi dropa, þá
getið þér verið þess fullviss, að
þér fáið eitthvað, sem segir sex.
„Bláa ljósið“ telur sparnað við
blöndun lyfja ekki sæmandi nú-
tíma lyfjafræði. Pað leggur mikla
alúð við lyfjaframleiðsluna. Svefn-
meðul og deyfingarlyf býr það til
sjálft. Nú á tímum eru lyfjakúl-
ur búnar til við sérstakt borð.
svara bréfum sínum samdægurs,
ef hægt er, eða við fyrsta tæki-
færi.
Kaupmannahöfn í desember 1937.
Sveinn Björnsson.
Pær eru hnoðaðar á þar til ætluðu
bretti, hver einstök kúla skilin frá
með spaða og hnoðuð milli vísi-
fingurs og þumalfingurs, þangað
til hún er orðin hnattmynduð. Síð-
an er kalkríku beiskjusalti stráð
yfir kúlurnar, og þær loks seldar í
litlum, kringlóttum pappaöskjum.
Lvfjabúðin stendur á götuhorni.
Umhverfis hana er ávallt hópur
tötralega búinna barna, sem fyrr
en varir munu þarfnast brjóstsaft-
ar og kvefdropa lyfjabúðarinnar.
Ikey Schoenstein var nætur-
vörður í „Bláa ljósinu". Hann var
málkunnugur viðskiptavinum sín-
um, enda er nú orðið algengt,
að lyfjafræðingurinn sé einskonar
skriftafaðir og ráðgjafi viðskipta-
vinanna. Hinum dularfullu vísind-
um hans er sýnd lotning, en lyfj-
um hans aftur á móti tíðast hellt
í þakrennuna, svo að lítið ber á.
Ikey, með sín hornspangagleraugu
og grannan og renglulegan vöxt,
var því vel þekktur í nágrenni
„Bláa ljóssins", og ráðlegging-
ar hans mjög eftirsóttar.
Ikey bjó og borðaði hjá frú
Riddle, sem bjó skammt undan.
Frú Riddle átti dóttur, sem hét
Rosy. En þessar málalengingar
eru víst árangurslausar — yður