Dvöl - 01.01.1938, Side 66

Dvöl - 01.01.1938, Side 66
60 D V ö L liðnum vetri í tilefni af afmælinu. Meðal annars flutti landi vor, pró- fessor Sveinbjörn Johnson, sem er prófessor í lögum við Illionis- háskólann og lögfræðilegur ráðu- nautur hans, fyrirlestur um sam- anburð á forngrískri og norrænni heimspeki (lífspeki), og prófessor George T. Flom, forseti norrænu- deildar háskólans, fyrirlestur um norræna goðafræði. Skal þá í stuttu máli horfið að sögu félagsins o;g starfi, einkum þeirri hliðinni, sem að íslandi snýr. Markmið félagsins er að efla áhuga á bókmenntum Norðurlanda og kynni af hlut- deild þeirra í vísindum og mennt- un (education). Félagsmenn eru kennarar háskólans í þeim fræð- um og skyldum fræðigreinum, framhaldsnemendur í Norður- landamálum og bókmenntum, og aðrir þeir, sem leggja rækt við þær menntir. Sést það ljóslega af félagatalinu í bæklingnum, sem grein þessi byggist á (H e i m s- kringla, Commemorative Book- let, 1911—1937, Urban, Illionis, 1937), að það er orðinn álitlegur hópur manna, sem verið hafa í „Heimskringlu“ um lengra eða skemmra skeið á liðnum aldar- fjórðungi, og eru eigi allfáir þeirra víðkunnir fræðimenn og háskólakennarar í Vesturheimi. Starfræksla félagsins er jafnað- arlega með þeim hætti, að félag- ar koma einu sinni saman á mán- uði? á tímabilinu október til maí. hlýða ásamt gestum sínum á fyr- irlestur um eitthvert það efni, sem er í anda stefnuskrár félags- ins, er einhver úr þeirra hópi flyt- ur, eða aðkomandi fræðimaður, þegar svo ber vel í veiði. S)'nir hin prentaða skýrsla félagsins, að fyrirlestrar þeir, sem fluttir hafa verið á fundum þess á liðnum tuttugu og fimm árum, hafa verið bæði fjölbreyttir að innihaldi og girnilegir til fróðleiks. Peir hafa fjallað um Norðurlandaþjóðir að fornu og nýju, tungu þeirra, sögu og menningu, bókmenntir þeirra og listir, um Ameríkufund norrænna manna, og um Norður- landabúa í ,Vesturheimi. Og ísland hefir sannarlega ekki orðið útundan, enda kafnaði ,,Heimskringla“ illa undir nafni, ef svo hefði verið. Hafa tuttugu fyrirlestrar félagsmanna verið um íslenzk efni að öllu eða einhverju leyti. Prófessor G. T. Flom, sem fyrr var nefndur, en hann er Norðmaður að ætt og uppruna og kunnur málfræðingur, hefir á fundum félagsins lagt drj :gan skerf til fræðslustarfa/ í vora þágu með mörgum fyrirlestrum um fornrit vor, sérstaklega um Eddu- kvæðin. Og dr. Flom mun hafa átt einna mestan þátt í stofnun „Heimskringlu“, því að stofnfund- ur hennar var haldinn á heimili hans; hefir hann einnig til þessa dags verið ein helzta máttarstoð félagsskaparins. Síðan prófessor Sveinbjörn

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.