Dvöl - 01.01.1938, Side 63

Dvöl - 01.01.1938, Side 63
D V ö L 57 hafði verið að tæta milli fingranna, ofan á kassann í vagninum. Hinir héldu, að hann gerði þetta henni til háðungar, en á svip hans var aðeins þreytu að sjá. Herferðin var næstum því á enda, allt, sem skemmtun gat verið að, löngu eyðilagt, allar nauðsynjar vöntuðu. . . . Hvenær hafði nokk- ur þeirra dreypt á góðu víni upp á síðkastið, eða bragðað nýtt kjöt? Og falleg, fjörug stúlka hefði jafn- gilt þunga sínum í gulli. Gamla konan haltraði áfram eft- ir Krakow-veginum meðfram Vistula og dró ýmist æki sitt eða ýtti því á undan sér. Himininn var ljósblár, skýhnoðrarnir líktust litl- um blómum. Hálfvisnir runnar sveigðust niður á straumiðu fljóts- ins. Gamla konan var að gefast upp Hún var svo gömul, svo þjáð, og svo þessi sífelldi kvíði, æ, þetta var næstum ofraun fyrir vesala, aldurhnigna konu. Hún mundi víst aldrei ná klaustr- inu á hæðinni. . . . Æ, en hún þráði það, átti hún að gefast upp nú, eftir þessar mörgu vikur? Dað var nú meira lánið, að hún skyldi komast frá þessum þorp- urum .... Guð hlýtur að líta í náð sinni til gamallar, örvasa konu. „Lofað veri hans heilaga nafn“. Hún signdi sig. En hana verkjaðj í alla limi lík- amans, beiskur vökvi fyllti munn hennar, hún fékk glýju í augun, hjartað sló hægt en þungt, eins og það ætlaði að springa í þessu brjósti, er nú var sem innantómt. . . . Hún hallaði sér fram móti þunga vagnsins, mjakaðist áfram eftir Krakow-veginum með mikl- um erfiðismunum. Hún náði litla aldingarðinum fyrir neðan kirkju- garðinn, leit upp til hinnar ein- manalegu kapellu klaustursins (hermennirnir höfðu virt nunn- urnar, af hvaða ástæðum sem það var)og sagði við sjálfa sig: „Eg get ekki gengið lengra“. ósléttar hendur hennar leystu böndin utan af kistunni á vagn- inum, og með varúð lyfti hún lokinu eftir að hafa litið fljótt í kringum sig. Fjörleg, ung stúlka, hvít og þrifleg eins og tamin kan- ína, settist upp. Hún hélt á klút fyrir vitunum, vættum í ediki, til þess að deyfa óþef þann, sem lagði af dauðum rottum við fætur hennar. Hún stóð stirðlega á fæt- ur og geispaði. Hið nýja loft var unaðslegt. Allt frá þeim tíma, er hermennirnir komu til Klatz, hafði hún verið falin í eldhússkáp, fyr- ir hinum gráðugu og ásælnu aug- um þeirra. Að vísu lifað á sæl- gæti, en samt í eldhússkáp. — Gamla konan kastaði rottunum burt og hné örmagna niður. Hún starði á dótturbarn sitt með stæri- læti og þeirri óframfærni, er kær- leikanum fylgir. „Hlustaðu á, Elísabet mín, ég hefi frelsað þig .Guði sé lof og dýrð. Hermönnunum er ókunnugt um þig, en ég er búin að vera,

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.