Dvöl - 01.01.1938, Side 80

Dvöl - 01.01.1938, Side 80
74 D V ö L til barnanna: sögur, leikrit, Ijóð, fræði- greinar o. fl. Ritstj. hefir reynzt mjög smekkvís á efni og málsmeðferð. Með J>ví allra bezta, sem biaðið hefir flutt, eru leikrit og ljóð ritstj. Þau hafa vakið mikla og óskipta gleði lesenda. Það væri vel, ef tíu ára ritstjórnar- afmælis M. J. væri minnzt á pann hátt, að gefa út í einni bók öll ljóð og leikrit, sem hún hefir samið fyrir börn. Við, starfssystkini Margrétar, mynd- um verða þakklát fyrir slíka bók, eins og við líka þökkum henni tíu ára ritstjórn hennajr í þágu bamanna. Ingimar Jóhannesson Srnásögur. Sœld og syndir heitir bók, er út kom fyrir nokkru. Eru í henni sjö smásögur eftir Jakob Thorarensen * skáld. Bókin kostar kr. 4,50, óbundin, og er lesmálið nokkru minna í henni en einu hefti Dvalar. Þessi bók virðist, eftir ritdómum í blöðum og tímaritum að dæma, vera talsvert mikill fengur bókmenntum vorum. Er það gott dæmi um, hve fá- tækir við erum af islenzkum smásög- um. Það er reyndar ekkert óeðlilegt, að íslenzkir höfundar yfirleitt standi að baki allra beztu höfundum stór- þjóðanna, er máske mikinn hluta æfinnar gera ekki annað en skrifa sögur, og lifa af því við ágæt kjör. Flestar íslenzkar smásögur, sem Dvöl verður vör við, standa líka langt. að baki, hvað list snertir, því bezta, sém er að finna í úrvalssöfnum margra helztu lieimsskáldanna. En öðru máli er að gegna með bundna málið, þar virðast Islendingar standa hlutfalls- lega miklu framar, en í óbundnu máli. Og það verður að segja um „Sæld og syndir“ Jakobs Thorarensen, að fram- ar þeim standa ýmsar hans ágætu smá- sögur, sem hann hefir fellt í bundið mál, svo sem „Eldabuskan", „Hrossa- Dóra“ o. fl. „Sæld og syndir“ eru islenzkar sög- ur, heldur stirðlega skrifaðar, margt skynsamlega sagt í þeirn, en þær fara nokkuð mikið troðnar slóðir, og af leikandi list er þar lítið að finná, Það er ekki ósennilegt, að þessar smá- sögur nái þó talsverðum vinsældum, einkum hjá þeim, sem ekki kæra sig um að fara víða, né láta hugann svífa mikið út fyrir hreppinn eða kaup- túnið, þar sem þeir eiga heima. V. G. Grímu, tímarit fyrir íslenzk, þjóðleg fræði, 12. árg., hefir Dvöl nýlega meðtekið. Ritstjórar Qrímu eru þeir Jónas Rafn- ar og Þorsteinn M. Jónsson á Akur- eyri. I þessum árgangi cru aðallega Þáttur af Rifs-Jóku, eftir Bordamín Sigvaldason þjóðsagnaritara og Vilia á öræfum, eftir Pálma Hannesson rekt- or. Einnig eru nokkrar smá-sagnir úr V.-Húnavatnssýslu, skráðar af Friðrik Á. Brekkan, og fáeinar fleiri stuttar greinar. Þeir, sem unna sérstaklega íslenzk- um sögnum og fróðleik, halda eink- um upp á Grímu, enda er hún þeim ætluð. Gríma bjargar líka mörgumark- yerðu frá gleymsku,

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.