Dvöl - 01.10.1939, Page 7

Dvöl - 01.10.1939, Page 7
245 D VÖL mínútum. Hann bar höfuðið dálítið hærra, það var líka eins og göngu- lagið væri svolítið auðveldara og léttara og brjóstkassinn eilítið fyllri og þandari, — í stuttu máli, hann var nokkrum árum yngri. — Svo hélt hann niður í bæinn. Hann þrammaði eftir Austur- stræti og hann var af og til að gefa gluggunum gætur, þessum stóru og voldugu gluggum, sem hafa þetta merkilega, tvöfalda hlutverk, að segja þér, hvernig þú gætir verið klæddur, ef þú keyptir eitthvað af því, sem innifyrir er, og svo hitt, hvernig þú ert klæddur, með því að endurspegla þig í fullri stærð í sínum fægðu rúðum. Og þá var það að Sigurður sá að hatturinn hans var gamall og lú- inn. Einkennilegt hvað það var allt í einu áberandi og eiginlega óþol- andi. En auðvitað var það frakk- inn. Hreinn og vel sniðinn frakki þolir ekki gamlan og barðabældan hatt. Sigurður keypti sér því nýjan hatt án frekari umhugsunar. Það sem á annarri stund hefði verið at- hugað af mestu varfærni, og að þeirri athugun lokinni sennilega ekki framkvæmt, varð nú á augna- bliki sjálfsagður hlutur. Þegar svo ber við, er sjaldan ein báran stök, og þess vegna flaut líka spengilegur göngustafur með í kaupin. Nú mátti segja, að listaverkið væri fullkomið. Þessi vel búni maður, sem gekk eftir götunni, hefði í fljótu bragði getað verið vel efnaður borgari, sem ekki þekkti áhyggjur komandi dags. Og þó, — ef betur var að gáð. Það var eigin- lega dálítið sorglegt og vafalaust hefir það verið sök skraddarans, — vasinn, þessi vasi, sem jafnan ligg- ur ofarlega á barminum vinstra megin, — hann var ekki vinstra megin, hann var hægra megin. Sigurður Bjarnarson hafði ekki tekið eftir því. „Hvað, er það ekki Sigurður? Að mér heilum og lifandi. Sæll og blessaður“. „Komdu sæll.“ „Og má ég kynna ykkur, drengir, Gunnar Ólafsson og minn gamli vinur Sigurður — uhm.“ „Bjarnarson," bætti Sigurður við. „Já, auðvitað, Sigurður Bjarnar- son, það er eins og þegar maður leitar að gleraugunum og hefir þau svo á nefinu.“ Maðurinn hló hjart- anlega og Sigurður brosti líka. „Ég var einmitt að segja Gunn- ari vini minum frá þér í dag og þeim gömlu góðu dögum. En hvert er ferðinni heitið, ha? Þú lít- ur út eins og grósseri, Sigurður. — En heyrðu, við erum að fara á Borg, klukkan bráðum sjö og gæs- in bíður. Þú kemur með, upp á gamlan kunningsskap, ha?“ Maðurinn beið ekki svars. Hann stakk hendinni kumpánlega í handarkrika Sigurðar og allir þrír voru komnir af stað áður en Sig- urður vissi af. Því bar ekki að neita, að þessar vinsamlegu kveðjur og boð komu Sigurði dálítið á óvænt. Hann

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.