Dvöl - 01.10.1939, Page 11

Dvöl - 01.10.1939, Page 11
D VÖL 249 „Látið þið mig vera, — lofið mér að komast út,“ sagði hann og hrökklaðist til dyranna. Úti var stormur, og krapaél gengu af og til yfir bæinn. Sigurð- ur skjögraði stefnulaust út í nátt- myrkrið. Óhnepptur frakkinn barðist fyrir vindinum til beggja handa. Ein vindstrokan tók hatt- inn. Hvað eftir annað var hann nærri kominn á hausinn. Bílar þutu framhjá í hársbreiddar fjar- lægð. Hann skeytti því engu. Það var svalandi að láta storminn og krapann lemja andlitið — það gerði ekkert til, hvert hann fór. Að lokum var hann kominn nið- ur að sjó. Gráar og dökkar öldur slettust um bryggjur og steina, þar úti í náttmyrkrinu. Sigurður var þreyttur. Höfuðið var þungt og tómt og einhver slappleiki fyrir brjóstinu. — Slitur úr gamalli troll- nót lá í hrúgu á sjávarbakkanum. Hún var gegndrepa af rigningunni. Hann fleygði sér niður á dyngjuna án frekari athugunar á hægindinu. Hann sat þarna um stund án þess að hugsa um nokkurn skapað- an hlut. Bráðlega fór þó tilveran að skýrast fyrir honum. Hann kannaðist við hússkrokkana og hálffúna timburbryggjuna, sem teygði sig þar rétt hjá honum út í náttmyrkrið og öldugjálfrið. Það var síður en svo, að staðurinn væri hugðnæmur, sízt á þessum tíma sólarhrings. — En sjávarloftið var þó hressandi. Hugsanirnar urðu nú skýrari og skipulegri með hverju augnabliki sem leið, en með því kom gremjan og meðvitundin um þann skaða og skapraun, sem hann hafði orðið fyrir. — Og hvernig stóð á þessu öllu saman? — Hver var eiginlega orsökin fyrir þvi, að hann hafði lent í þessari forsmán? — Var það nokkuð annað en þessi frakki, sem nú lá þungur og blautur yfir herðar hans. — Pínn frakki ha, — einn af þessum nýmóðins, með vas- ann hægra megin. Hann þreif í blautt frakkalafið og sletti því fyrirlitlega til hliðar. Þessi falska flík, sem öll var slitin og núin og upplituð að innan, og nú forug og blaut að utan. — Hvers virði var hún nú? Jú, minning um forsmán og skaða. Eða áminning. — Eða loks ekki neitt, — ekki til. — Á sama augnabliki hafði Sigurður tekið ákvörðun. Hann skyldi eyði- leggja frakkann. Hann skyldi kasta honum í sjóinn. Sigurður klöngraðist á fætur og reif af sér frakkann. Rennblautt hárið flaksaðist í rigningunni og storminum. Hann var ennþá ó- styrkur á fótunum. Bryggjan var slorug og blaut. Fremst á bryggju- sporðinum hóf hann upp frakkann, sem hann hafði hálfdregið á eftir sér. — Skörp vindkviða með dimmu éli þaut yfir höfnina og bæinn. — Maður, sem gekk eftir götunni, stanzaði snöggvast eins og hann væri að hlusta, svo hélt hann áfram. Misheyrn, hugsaði hann og vafði þéttar að sér yfirhöfnina. Kveinið í storminum.------------

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.