Dvöl - 01.10.1939, Page 15

Dvöl - 01.10.1939, Page 15
D VÖL 253 vera vel til fara, hún er kát og skemmtileg og kann vel við sig í hópi glaðværra jafningja. Hún er vinnandi og vinnugefin — hefir þegar í bernsku vanizt vinnunni. Og hún yfirgefur sveitina ekki vegna þess, að hún sé að forðast störf og sækjast eftir hóglífi. En tekjurýrt sveitabúið hefir í kaup- greiðslu ekki getað staðizt sam- keppni við verðbólgu kaupstað- anna. Sveitastúlkan hefir lent þar, sem boðin voru betri kjör, hærra kaup. Til þess þurfti ekki hégómaskap, heldur sjálfsbjargarviðleitni. Hún er önnum kafin í hinum nýja jarð- vegi. En óneitanlega nýtur hún þar margs, sem hún þekkti ekki áður. Fyrir laun sín klófestir hún eitt- hvað af eftirsóttum gæðum þessa heims — og hver krónan er fljót að hverfa í súginn. Flutningur sveitastúlkunnar til kaupstaðanna hefir sjaldan verið með öllu sársaukalaus, en þó að hún bryti brýr að baki sér og bær- ist með straumnum, verður það ekki reiknað henni til syndar, því að þrátt fyrir allt hefði það oft beinlínis verið skortur á þreki og manndómi, ef hún hefði ekki brot- izt úr torfbæjum — frá einangrun og basli til ríkara lífs. Ef um sök er að ræða, er hennar að leita til þjóðfélagsins, sem í þessu efni hef- ir þá leikið hlutverk flagarans! — Sveitastúlkan hefir stundum kom- ið heim í sveitina aftur — oftast sem farfugl — með litaðar varir, málaðar augabrúnir, lakkaðar neglur, liðað hár, tepruleg í hreyf- ingum með gjallhauga púðursins á nefi og vöngum. Hún hefir kallað tilgerðarlega „Guðmundur minn“ eða„almáttug- ur“ við þau tækifæri, sem móðirin og ömmurnar hefðu stunið: „Jesús minn!“ Og hún hefir ef til vill talað um dásemdir kaupstaðanna, bíó og dansleiki og býsnazt yfir því, að fólk skyldi geta lifað í sveitunum: „Oju — bara!!“ Á hana hefir verið horft og á hana hefir verið hlustað með heilagri vandlætingu, gremju, og stundum jafnvel með — ofboðlít- illi öfund! Orð hennar hafa verið vegin og dæmd af miskunnarlausri gagn- rýni. Gikkshætti hennar hefir ver- ið haldið á lofti. En heildin verður aldrei dæmd eftir slíkum dæmum. í hópi íslenzku sveitastúlkunnar eru dæmin fá um hugsunarlausa lítilmennið, sem afneitar sveitinni, moldinni, steinunum, blómunum, þar sem hún lék sér barn. Snyrtingu sveitastúlkunnar er oft ábótavant. Það er eftiröpuð menning, sem hún hefir ekki náð fullu valdi á. En hún er orðin barn sinna óska og í fjörlegu fasi hennar er gustur af frjálsu lífi. Hún hefir rofið ýmis gömul og ryðbrunnin form. Hún hefir kastað söðlinum út í yztu myrkur, leggur hnakk á reið- skjótann og hleypir frjáls og ör-

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.