Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 16

Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 16
254 D VÖL ugg í sæti — en dragsítt reiðpilsið hefir orðið að víkja fyrir pokabux- um. Hún hefir mjög oft traðkað á tilfinningum móðurinnar, sem hefir fléttað hár og klæðist þjóð- búningi við hátíðleg tækifæri. Á herðar hennar skella ókvæðisorð grárra siðvenja, enda hefir hún oft teflt djarft, hampað eldinum, af- skræmt tízkuna og farið um margt út í öfgar. En þrátt fyrir allt sitt fálm, allar sínar skyssur, allar sínar vitleysur, er hún nýtur brautryðjandi. Hún er eins og svipvindur, sem myndar gára á lygnu lóni. Hún hefir af eldmóði sínum gefið sveitunum nýjan anda, snöggar hreyfingar, djarfar hugsanir, í stað kyrrstöðu og kotungsháttar. Og sá blær mun móta viðmót og viðhorf sveita- stúlku framtíðarinnar. Þau áhrif, sem flutzt hafa úr kaupstöðunum út í dreifbýlið, marka góð og djúp spor, þegar jafnvægi hefir myndazt milli þjóðlegrar og aðfenginnar menn- ingar. í íslenzku þjóðlífi er sveitastúlk- an fulltrúi þeirra strauma. Hún er stödd á vatnamótum. Hlutverk hennar er að veita ólíkum elfum í sama farveg, sætta gamlan og nýjan sið, velja og hafna, bræða úr því bezta heilsteypta menningu. III. í sveitum íslands hefir ekki að- eins verið undanhald, heldur líka sókn. Þar hafa mörg gömlu, þýfðu túnin verið sléttuð, óræktir plægð- ar, móum, mýrum og melum breytt í tún og kartöfluakra. Bæirnir myndarlega hýstir, sími lagður um landið, ólgandi straumvötn brúuð. Bifreiðar renna um nýja vegi, þar sem áður fetuðu hægfara lestir mjóa götuslóða. Aflið úr bæjar- læknum lýsir og hitar mörg heim- ili, og á bylgjum loftsins berst tal og tónar til útvarpshlustenda í dölum og fjörðum. Fjarlægðir hafa horfið. Heimsmenningarinnar gæt- ir inn í innstu afkima íslenzkra sveita — ekki með brjálaðan hern- aðaranda og drynjandi morðvélar, heldur með tækni til þess að drottna yfir frjómagni moldarinn- ar og orku vatnsins, gera náttúr- una örláta á auðæfi sín og útrýma villimannlegri rányrkju. íslenzka sveitastúlkan er alin upp við þetta umrót. Umbætur sveitaheimilisins hafa kostað óhemju starf, langa vinnudaga, til verks hefir verið gengið með samstilltum höndum, sem ekki hafa alheimtað daglaun að kvöldum. Handtök sveitastúlk- unnar í þeim aflraunum hafa ekki verið talin, en víst er, að þau eru mörg. Það má segja, að á leið þessarar þróunar hafi sveitaheimilið eignazt í víðtækri merkingu endurbætta sál. Og þau hamskipti hafa ekki sízt orðið sveitastúlkunni í vil. Hún lifir nú við betri skilyrði en áður til þess að þrífast í sínu umhverfi. Og þess þekkjast ekki lengur dæmi, að hún sé barin fyrir þá viðleitni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.