Dvöl - 01.10.1939, Side 17

Dvöl - 01.10.1939, Side 17
D VÖL 255 að draga til stafs. Henni hafa verið opnaðar leiðir til þess að sýna og sanna andlega hæfileika sína og svala meðfæddri þekkingarþrá. Og í mörgum byggðum landsins hafa héraðs- og alþýðuskólar verið reist- ir. Þar stundar sveitastúlkan ó- sjaldan bóklegt og verklegt nám. Þaðan kemur hún víðsýnni, ríkari af lífsþrótti, með aukna trú á fram- tíðina — hæfari til þess að rækja skyldurnar við þjóðfélagið í fyll- ingu tímans, sem koma skal. Og nú hefir hún fleiri leiðir en áður til þess að sinna margvísleg- um hugðarefnum í tómstundunum. Hún þarf ekki að nærast á einhæfu listsnauöu miðaldasálmarugli og rímnarytjum. Hún nemur aðallega ættjarðarkvæði og ástarljóð, les helzt skáldsögur, en snertir minna fræðirit. Þjóðmál hugsar hún lítið um og trúmáladeilur lætur hún sig engu skipta. En hún er ekki trú- laus. Trú hennar er frjáls og ó- formuð, ekki reist á sértrúarkredd- um, heldur rödd hennar eigin sálar, eða hljóður arfur frá guðhræddum formæðrum, arfur, sem hefir mýkzt og skírzt í deiglunni á leið kynslóðanna til vaxandi hamingju og mannréttinda. Það er ef til vill ekki hægt að segja, að sveitastúlkan sé róman- tísk — þó að hún eigi drauma og hugðarheima. Hún er ekki sólgin í ilminn af fornaldarfrægð — en gerir kröfur til lífsins eins og það er og getur verið. Þó að margt hafi verið skeggrætt um forna heimilis- menningu í íslenzkum sveitum, þá er samt mála sannast, að meira hefir verið af henni látið heldur en vert var. Fjöldi sveitaheimila hefir lítið haft að bjóða æskunni, nema mörg óunnin verkefni. Hin óleystu störf eru að vísu enn mörg og margþætt, en vaxandi tækni hefir gert annir dagsins auð- veldari viðfangs. Mismunandi árs- tíðir mynda helztu breytingar á störfum sveitastúlkunnar. Þá bein- ast heimilisannirnar í nýja farvegi. Og alstaðar gætir þar fingrafara nútímans — tækninnar, sem eykur hraðann og gerir kleift að auka af- köstin og velmegun heimilanna^ þó að höndunum, sem verkin vinna, fækki. Störfin eru orðin vélræn — en um leið tapa þau nokkru af þeim persónulega blæ, sem áður bjó í hverri lykkju og hverjum þráðar- spotta. í stað prjónanna er komin prjónavél. Vefstóllinn hefir verið sviptur voðum, kambarnir lagðir á hilluna, en ullin er send í verk- smiðjur, sem skila aftur dúkum eða lopa. íslenzka sveitastúlkan spinnur ekki eins fínt band og amma hennar gerði, enda er rokk- urinn henni ekki eins handgeng- inn. Spunavélin er staðgengill hans. Skilningurinn á gildi sveitaheim- ilanna hefir aukizt. Þau hafa hlotið eldvígslu — og sigrað. Sá timi er löngu liðinn, að sveitastjórnirnar sendi fólk í útlegð til Vesturheims.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.