Dvöl - 01.10.1939, Side 18

Dvöl - 01.10.1939, Side 18
256 DVÖL Og nú er ekki heldur horft með kulda og skilningsleysi á flutning þess frá framleiðslu sveitanna. Augun hafa opnazt fyrir þýðingu landbúnaðarins í vogarskál þjóð- arhamingjunnar. Og þó að margt hafi verið gert í landinu, er það samt enn ónumið. Verðmætin, sem búa í mold þess, eru að vísu torsótt. Það þarf þrek og áræði, sókn á brattann, til þess að seiða þau úr órækt og þúfnakarga. Það kostar erfiði og andvökur að fjölga býlum í sveitum landsins. En það er hlut- verk hinnar ungu, hraustu kyn- slóðar, sem þar er að mótast. Á þeim vettvangi bíður æskunnar landnámið, þar á hún að vinna að auknu jafnvægi i atvinnulífi þjóð- arinnar, þar á hún að troða nýjar slóðir, sanna þrótt sinn og hug- sjónir, sá nýja akra. Þjóðfélagið metur orðið hug æskunnar til þess að nema lönd og réttir henni örv- andi hönd. En íslenzku sveitastúlkunnar bíða erfiðleikar, þegar hún gengur út í þá baráttu við hlið elskhugans. Kona einyrkjans og landnemans grefur ekki pund sitt í jörðu — heldur ávaxtar það! Við stefnu sveitastúlkunnar eru festar stórar vonir. Aldrei hafa hennar beðið margþættari tæki- færi til þess að láta verkin tala. Aldrei hafa glæsilegri verkefni ver- ið lögð í hendur hennar, aldrei stærri þjóðheillastörf. Það er víst, að ekki stendur á henni til viðnáms og viðreisnar. Hún heyrir kall hins nýja tíma, skilur skyldur sínar. Og um leið skapar hún afkomendum sínum góð uppeldisskilyrði við brjóst landsins í skjóli vaxandi menning- ar. Verk hennar eru og verða unn- in í anda gróandans. IV. Það er sumarkvöld. Ég er staddur á fallegum sveita- bæ. Heimasætan kemur með tvær tómar fötur úr bænum. Hún er ný- komin af engjunum til þess að mjólka kýrnar. Ég heilsa með handabandi. Hönd hennar er dálítið hrjúf eftir erfiði dagsins, en þó mjúk. Handtak hennar er þétt og þýtt. Hún er sólbrennd og sælleg, þreklega vaxin og dugnaðarlega. í augum hennar er glettni og bros á vörunum. Hún er í þunnum, ermalausum kjól, í hálfsokkum, á svörtum skóm, sem einhver skóarinn hefir sniðið úr gamalli bílslöngu. Þykkt, hrokkið, hálfsítt hár hrynur laust og óþvingað um brún- an háls. Og milli lokkanna bólar á lítinn fífukoll, sem laumazt hefir óboðinn inn í paradís. Við fylgjumst að upp á stöðulinn. Þar úða kýrnar iðgrænt túngresið. Meðan hún mjólkar, sit ég á steini skammt frá og tala við hana. Hún er skýr og ræðin. Hún hefir nokkur kynni af straumum og stefnum, sem uppi eru og helzt á dagskrá — er samt hikandi og varfærin í

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.