Dvöl - 01.10.1939, Síða 25

Dvöl - 01.10.1939, Síða 25
D VÖL wen bætti köldu vatni í og Gomer steig upp í baðkerið. Hún bar ílátin burt af borðinu, meðan hann þvoði sér. Hún gekk lipurt og rösklega til verks, og innanhúss var allt hreint og snyrtilegt. „Nú er bakið eftir,“ mælti Go- mer. „Bíddu þá,“ sagði hún kuldalega og bar síðustu matarleifarnar fram í eldhúsið. Og hann varð að standa 1 bað- kerinu og bíða með kolablettinn milli herðarblaðanna, sem stakk mjög í stúf við skjallhvítan skrokk- inn. Hann vissi, að nú var hún að hervæða hugarfarið að nýju. Hann hefði svo sem getað hrópað til hennar og skammað hana fyrir seinlætið, en í dag hafði hann enga löngun til þess. Brennandi eftir- vænting hélt honum í skefjum. Þegar hún loksins kom og nuddaði á honum bakið með handklæðinu og hellti að síðustu yfir hann, sagði hann ekki orð. Tautaði bara, þegar öllu var lokið: „Ekki berð þú mikla virðingu fyrir nöktu mannshörundi, Blod. Það er eins og þú sért að nudda hrosshúð, þegar þú þværð mér um bakið.“ „Huhh!“ sagði Blodwen — „ég ætla að sækja svolítið púðurkorn handa þér.“ Hann hló seinum og glöðum hlátri. Hann langaði til að koma henni í gott skap. „Ójá,“ sagði hann ástúðlega, „einn góðan veðurdag opnast kann- 263 ske augu þín, Blod min, fyrir því, hve skrokkurinn á karli þinum getur verið hreinn og hvítur.“ „Það er verst að þú veizt ekki af því sjálfur!“ sagði hún og fékkst ekki til þess að líta við, meðan hann hamaðist við að þerra sig. Þegar leið að kvöldi, sat hann við arininn og lét fara vel um sig, en hún bjóst til þess að fara upp á loft og hafa fataskipti.“ „Þú ferð ekkert út í kvöld, Blod, er það?“ spurði hann. „Jú, ég ætla í kirkju." „Gerðu það nú fyrir mig, að fara ekki út í kvöld,“ sagði hann. Undrunin skein úr svip hennar. Þessi kurteisi og þessi afskipta- semi um gjörðir hennar voru alveg spáný fyrirbrigði. „Jæja, ekki það!“ byrjaði hún og var albúin til orustu. Hann hallaði höfðinu að henni. í augum hans var glampi og skrítið bros lék um varirnar. „Farðu samt upp fyrst og hafðu fataskipti,“ sagði hann. Hún yppti öxlum og gekk síðan upp stigann. Hann sat kyrr og beið hennar. Innan skamms kom hún niður í daufrauðum silkikjól. Andlitið var hreinþvegið. Hún var búin til kvennaguðsþjónustunnar í kirkj- unni. Hann leit á hana, hlýtt og viðurkennandi, og mælti síðan blíðlega: „Komdu hérna til mín, Blod.“ „Hvað er nú á seyði?“ spurði hún, ennþá dálítið treg og köld.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.