Dvöl - 01.10.1939, Side 28

Dvöl - 01.10.1939, Side 28
266 skyni að efla málstað sinn: „Konan hans Montague yfirvélstjóra. Ég — “ En frú Hopkins greip fram í fyrir honum með miklum hávaða: „Já! Þarna kemur það. Já, nú fer ég að skilja. Hún er dyggða- kvendið, var það ekki? Lengi er ég búin að hafa illan bifur á henni.... Jæja þá, Gomer Vaughan, jæja þá . ...“ Og hún tók að þokast aftur á bak út úr herberginu og kinkaði sínum stóra kolli, eins og til þess að bera fram óákveðnar og leyndar hótanir, en þokuleg augu hennar hvíldu á honum og ljómuðu af sigurgleði. Gomer hrópaði til hennar: „Þú sendir Blodwen hingað heim tafarlaust.“ Fyrirferðarmikill líkami frú Hop- kins vatt sér ótrúlega léttilega út úr dyrunum. „Við skulum sjá til, karl minn,“ hreytti hún um öxl hér, „við skulum sjá.“ En Gomer var í engum vafa um það, að Blodwen myndi koma. IV Og hún kom líka — áður en hann bjóst við henni. Frú Hopkins var ekki fyrr komin heim og búin að ryðja úr sér allri þeirri vitneskju, sem hún hafði fengið, en Blodwen þaut af stað og æddi inn í herberg- ið, þar sem maður hennar sat, full- ur niðurbældrar gremju. „Þú,“ byrjaði hún og gekk upp og niður af mæði — „þú sást þessa konu!“ D VÖL Hún var ásýndum eins og hana langaði til að stökkva á hann. En líkt og ólmur hundur I bandi hopp- aði hún og starði tryllingslega á hann. „Þar heldurðu þig, þegar þú kemur seint heim! Þetta hefirðu þér til dægradvalar, er það — “ „Svona, svona, Blodwen — “ byrjaði hann. Síðan þagnaði hann og reyndi ekki að bera af sér ásakanir hennar. Um varir hans lék glott, svo að munnurinn minnti á úlfsgin. Blodwen lét skammirnar dynja látlaust á honum. Hún varð æ trylltari og trylltari. Hún froðu- felldi og augun ætluðu út úr henni. Og hann kunni að meta þessa villtu, æðisgengnu fegurð. Þannig fannst honum hún glæsileg. — Kænskulegt úlfsglottið breiddist út um andlit hans. Nú sleppti hún sér algjörlega. „Ég verð ekki einni nótt lengur í þessu húsi! Ég veit, að mamma tekur mér opnum örmum, þegar ég kem aftux heim — “ Nú áleit hann, að ótti hennar hefði náð hámarkinu. Hann reis á fætur og gekk til hennar. Hún hörfaði undan, en hann fylgdi fast eftir. Hann tók þétt um handleggi hennar og hélt henni með valdi. „Nógu lengi hefi ég hlustað á móðganir þinar, Blod. Hvar fékkstu þá flugu í höfuðið, að ég héldi framhjá þér? Ha? Hefir kerlingar- álkan logið þig fulla?“ „Þú sagðir henni, að þú hefðir séð frú Montague nakta — “ „Nú, já, það sá ég líka — “

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.