Dvöl - 01.10.1939, Page 29

Dvöl - 01.10.1939, Page 29
D VÖL 267 Blodwen barðist um á hæl og hnakka til þess að losna. „Ó, ó!“ öskraði hún. „Þær konur eru til,“ sagði hann, „sem ekki eru jafnnizkar á feg- urð sína og þú! Frú Montague kom ágætt ráð í hug til þess að auka á hamingju bónda síns. Hlustaðu nú á, litli kjáninn þinn. ...“ og hann sagði henni, hvað fyrir hann hafði borið þá um daginn. Hún sefaðist. Undrun og furða skein út úr eldrjóðu andliti henn- ar. En í augum hennar tók einnig hægt og hægt að votta fyrir brún af nýjum degi... . „Og þarna sérðu nú,“ sagði Go- mer, þegar sögunni var lokið, „hve fljót þú ert til að ætla mér illt. Og þó kom ég heim með þá ósk í huga að fá að sjá fegurri sjón en frú Montague gat veitt mér. Og þá sjón hefði ég líka getað fengið að sjá, en allt strandaði á því, að þú hafð- ir ekki hlotið rétt uppeldi. í því er bölvunin fólgin. Þér hefir til hálfs verið innrætt allt of mikil blygð- unarsemi.“ Blodwen var ofurlítið niðurlút. Ávalir, hraustlegir vangar hennar fylltu hann ástúð. Og göfuglyndi. Hann sagði blíðlega: „Nú skal ég segja þér eitt, Blod. Við gerum með okkur samning. Þig langar að fá slaghörpuna, er það ekki? Jæja, og þá skulum við láta hvort að annars vilja —“ Hún varð enn niðurlútari. Nokkr- ir grannir lokkar úr jörpu hári hennar snertu varir hans. Hann titraði. Hönd hans strauk yfir öxl hennar. En það fékkst ekki orð út úr henni. „— Og vera góð hvort við ann- að“, hélt hann áfram, „og ekki vera sífellt að rífast, eins og pabbi þinn og mamma gerðu! Við verðum að lifa okkar eigin lífi, Blod .... Svona nú, er hún ekki góða og fallega stúlkan ... svona, já! fall- eg eins og rós, vina mín, rjóðari og hvítari en nokkur rós! svona, ljúfan mín, engillinn minn!“ Þórarinn Guðnason þýddi. SKÝRING Á KVÆÐI GULLBERGS. Bernhard frá Clairvaux (frb. kleruó), /. 1090, d. 1153, var af frönskum aðalsættum, en gekk í klaustur 1112, hrifinn af þeirri hugsjón, er miðar að því að feta í fótspor Krists, hvað fátæklega lifnaðarhætti snertir. Varð skjótt víðfrægur sem stór- fenglegur persónuleiki, frábær mælsku- maður og einlægur guðsdýrkandi. Hafði geysimikil áhrif bæði á samtíð sína og eftirkomendur; enda talinn einhver á- hrifamesti maður kirkjunnar á 12. öld. Bernhard frá Clairvaux var m. a. frum- kvöðull annarrar krossferðarinnar. LEIÐRÉTTINGAR. í „Þrem þýddum kvæðum" eftir Magnús Ásgeirsson í apríl- júníhefti „Dvalar" 1938, voru þessar prent- villur (allar í síðara erindi kvæðisins „Stálbænir"): glóanda les glóandi; kjálka, les bjálka; skýjakljúfinn, les skýkljúfinn. í kvæðinu „Næturstaður", sem síðar birt- ist i „Dvöl“, var villa í síðasta erindi: Því nógu þungt var þá um gang, í staðinn fyrir; Því nógu þungt var þér um gang. Lesendur „Dvalar“, þeir sem halda ritinu saman, eru vinsamlega beðnir að færa þessar leiðréttingar inn.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.