Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 32
270
DVÖL
N obelsverðlaunaskáldið
árið 1989
Eftir Leif Haraldsson
F. E. Sillanpáa.
Úthlutun bókmenntaverðlauna
Nobels 1939 til finnska skáld-
sagnahöfundarins F. E. Sillanpáá
vakti enga furðu, a. m. k. ekki hér
á Norðurlöndum. Bókmennta- og
blaðamenn hafa það sér til gamans
næstu vikurnar fyrir úthlutun
Nobelsverðlaunanna, að geta upp
á þeim, er komið geta til mála sem
verðugir að hljóta hnossið. Sillan-
páá hefir undanfarin haust verið
þar ofarlega á blaði. í ættlandi
hans mun það jafnvel hafa valdið
vonbrigðum, þegar framhjá hon-
um var gengið í fyrrahaust, ef
marka má af því, að honum var
gefið viðurnefnið: „Maðurinn, sem
ekki fékk Nobelsverðlaunin.“ — En
nú, þegar Sillanpáá er maðurinn,
sem fékk Nobelsverðlaunin, þá
vekja þau tíðindi nokkru minni at-
hygli en mátt hefði ætla. En þrátt
fyrir það beinast hugir alheims nú
fremur en löngum fyrr til Finn-
lands, og eru orsakir þess kunnari
en svo, að um þurfi mörgum orðum
að fara. Hin mikla persóna Sillan-
páás hverfur oss sjónum í svælu og
reyk hinnar ægilegu styrjaldar;
orðstír hins mikla Finna þokar fyr-
ir tíðindum af hreystiverkum og
dáðrekki hans merku þjóðar. —
Þannig er þessu farið frá degi til
dags. En þó getur ekki hjá því far-
ið, að honum við og við skjóti upp
í huga bókmenntavina — og þá
birtist hann þeim sem ímynd alls
hins bezta með finnsku þjóðinni.
Frans Emil Sillanpáá fæddist 16.
sept. 1888 í Tavastkyrö í fylkinu
Satakunda í Suðvestur-Finnlandi.
Foreldrar hans hétu Frans Henrik
Sillanpáá, fátækur leiguliði, og
Lovísa Vilhelmína ísaksdóttir,
kona hans.
Fyrir 50 árum var alþýðumennt-
un mjög skammt á veg komin í