Dvöl - 01.10.1939, Side 36

Dvöl - 01.10.1939, Side 36
274 DVÖL á smásagnagerð, enda virðist hon- um alltaf hafa verið smásöguform- ið hugþekkara, ef marka mætti af því, að hann hefir gefið út um tíu bindi af smásögum. Sá möguleiki er og fyrir hendi, og reyndar engu ólíklegri, að aðstæðurnar hafi ráð- ið forminu. Hugkvæmum höfundi er smásöguformið oft tiltækilegra, vilji hann á annað borð láta hug- mynd sína geymast, þótt hún í sjálfu sér væri ekki síður efni í stóra skáldsögu. — Um smásögur Sillanpáás er það í stytztu máli að segja, að þær eru, eins og eðli- legt er, með hliðsjón af hinum miklu afköstum hans í þeirri grein skáldskapar, mjög misjafnar að gæðum. Væri íslenzkum lesendum góður greiði gerr með því að gefa út í einu bindi úrval af því bezta, sem eftir Sillanpáá liggur í smá- sagnagerð. Virðist það ákjósanlegt verkefni fyrir þau bókaútgáfufyrir- tæki, er sjá fólki fyrir lestrarefni við gjafverði. Með árinu 1931 hófst nýr áfangi á ferðalagi Sillanpáás um ríki list- arinnar. Þá kom út sú skáldsaga hans, er á síðustu árum hefir aflað honum flestra aðdáenda, sagan um Silju, ungu, laglegu bóndadóttur- ina, sem dó í vikunni eftir mið- sumar, meðan jörðin var í fullu sumarskrúði; varð aðeins 22 ára; fæddist þremur mílum norðar en hún dó, og var þó alla æfi sína á leiðinni suður á bóginn — eins og segir í inngangi sögunnar sjálfrar. Þetta er sú skáldsaga Sillanpáás, sem flestir íslendingar þekkja, því að hún hefir komið út á íslenzku (1935), ein hinna stærri skáldsagna hans. Vegna þess, að hún er tiltæk öllu bókelsku fólki, er óþarft að fjölyrða um hana hér. En vinum Silju þætti eflaust gaman að vita, hvernig hennar ástsæla nafn er til komið og skal því sagan um það sögð hér, höfð eftir þekktum, sænskum bókmenntamanni. Sillanpáá hefir meiri mætur á sænska Nobelsverðlaunaskáldinu Erik Axel Karlfeldt (1864—1931) en nokkru öðru skáldi. Og það er einmitt af kvæði eftir Karlfeldt, sem Sillanpáá hefir fengið þann innblástur, er skóp 1 huga hans frumdrættina að persónunni Silju og sögu hennar — kvæðinu „Jung- fru Maria“. Kvæðið um ungfrú Maríu endar þannig: „Ja, den strálen som ligger sá blánkande och láng ifrán aftonrodnans fáste över Siljan — du kunde gá till paradjs i kváll din brudegáng pá den smaia och skálvande tiljan." Þarna er þá ráðin gátan um nafnið — með því að strika út seinasta stafinn í Siljan — en Siljan heitir, svo sem kunnugt er, stöðuvatn í Dölunum í Svíþjóð; oft kallað í daglegu tali „Dalornas öga“ (auga Dalanna). En við lestur kvæðisins í heild sjást svo greini- leg skyldleikamerki með ungfrú Maríu og Silju, að ekki verður um villzt. Nú gerðist Sillanpáá óspar á hin

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.