Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 44

Dvöl - 01.10.1939, Blaðsíða 44
282 hringstigann og út um vesturdyrn- ar, í þá átt sem herbúðir bróður hennar voru. Ætlun hennar var að sleppa út, án þess að varðmaðurinn sæi hana, komast niður í hesthús, vekja einn af hestasveinunum og senda hann á undan sér eftir þjóð- veginum með miðann til bróður síns, og búa hann undir komu sína. Hún stóð ennþá í skugga af veggnum, við vesturpallinn, og var að bíða eftir að varðmaðurinn hyrfi úr augsýn, þegar rödd barst til hennar úr skugganum lengra til hliðar: „Hérna er ég!“ Það var kvenmannsrödd. Frú Baxby svaraði ekki, en stóð þétt upp að veggnum. „Lávarður minn,“ hélt röddin á- fram; og hún þekkti á mállýzk- unni, að það var stúlka frá Shel- ton, borg þar skammt frá. „Ég er orðin þreytt á að bíða, elsku lá- varðurinn minn! Ég var orðin hrædd um, að þú ætlaðir ekki að koma!“ Frú Baxby roðnaði niður á tær. „Hvað stelpan elskar hann heitt!“ sagði hún við sjálfa sig. Hún ályktaði það af hreimnum í röddinni, sem var raunalega blíð og mjúk eins og í fugli. Hún breytt- ist í einu vetfangi úr fyrtinni flóttaKonu í ráðkæna eiginkonu. „Uss!“ sagði hún. „Lávarður minn, þér sögðuð mér að koma klukkan tíu og nú er hún nærri tólf,“ hélt röddin áfram. — D VÖL „Hvernig gátuð þér fengið af yður að láta mig bíða svona, ef þér elskið mig eins og þér sögðuð? Ég hefði haldið mig við kærastann minn í þinghernum, ef þér hefðuð ekki átt i hlut, lávarður minn!“ Það var ekki nokkur efi á, að þessi lævísa stelpukind hélt, að frú Baxby væri lávarðurinn. Hér voru þokkaleg brögð í tafli! lævísleg undirferli! ótrúmennska! Leyni- fundur, sem lostið var upp í miðju kafi! Hvernig gat maðurinn hennar, sem hún hafði borið tak- markalaust trúnaðartraust til allt til þessa, fengið af sér að gera þetta! Frú Baxby hörfaði í skyndi inn um dyrnar, lokaði hurðinni, læsti henni og gekk einn hring upp hringstigann og nam þar staðar við skotrauf í veggnum. „Ég kem ekki! Ég, Baxby lávarður, fyrirlit þig og alla þína lauslátu félaga!“ hvæsti hún í gegnum skotraufina; og svo læddist hún upp, eindregn- ari konungssinni en allir íbúar kastalans til samans. Bóndi hennar svaf ennþá — ef ekki svefni hinna dyggðugu, þá að minnsta kosti svefni hinna þreyttu og nærðu. Frú Baxby klæddi sig úr, hjálparlaust — því að herbergisþernan hélt auðvitað, að hún væri löngu sofnuð. Áður en hún lagðist fyrir, læsti hún hurð- inni hljóðlega og setti lykilinn und- ir koddann sinn. En ekki nóg með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.