Dvöl - 01.10.1939, Side 47

Dvöl - 01.10.1939, Side 47
D VÖL 285 Fuglalíf er mjög fjölskrúðugt, sem vænta má, enda eru þarna ágæt skilyrði fyrir vöxt og viðgang alls dýralífs. Veiðiaðferð ýmissa skæðra rán- dýra er venjulega sú, að þau stökkva upp á herðakambinn á bráð sinni og reyna að bíta dýrið á hálsinn. Þessu til varnar reigir dýrið, sem hefir löng og mjó aftur- beygð horn (eins og flestar anti- lópategundir hafa) höfuðið aftur á bak og reynir að særa óvininn með hornunum. Náttúran hagar því svo til, að hún lætur varnar- tæki dýrsins vaxa í svig aftur frá höfðinu, svo að þau miði í þá átt, sem mesta hættan steðjar frá. Ef óvinurinn ræðst hins vegar framan að bráðinni, lýtur dýrið með höfð- inu ofan að jörð og otar vopnum sínum beint fram. Áður en þjóðgarðurinn var stofn- aður og friðhelgi hans lögboðin, reikuðu veiðimenn um landið með skotvopn og veiðihunda og drápu nálega hverja skepnu, sem þeir komust í færi við. Var því fyrir- sjáanlegt, að merkustu dýrateg- undunum yrði útrýmt með öllu í náinni framtíð, ef hranndrápið héldi stjórnlaust áfram. Ráðandi menn í Transvaal sáu, hvernig fara mundi, og komu því til leiðar, með fylgi þjóðarinnar, blaða- og tíma- ritakosti hennar, að þarna var stofnað friðlýst land fyrir allan jurtagróður og dýralíf. Flestum var ljóst, að ekki var vansalaust fyrir þjóðina að horfa aðgerðalaus upp á, að fegurstu og tilkomumestu dýrategundir í náttúru landsins yrðu gjörsamlega eyddar. Stofnun þjóðgarðsins varð til þess, að nú breyttist viðhorfið gagnvart nátt- úru landsins. Ferðamenn streymdu hvaðanæfa úr löndum til að skoða þarna undraverk náttúrunnar. Hefir það orðið drýgri tekjulind fyxúr þjóðina heldur en ágóðinn af veiðunum. Ströng lög voru þegar í fyrstu sett um friðun garðsins, og mönnum, sem urðu til þess að brjóta þau, var refsað með háum fjársektum eða fangelsi. Akvegir hafa verið lagðir um þjóðgarðinn þvert og endilangt. Geta menn því kornizt leiðar sinn- ar á bifreiðum og séð frá þeim alla náttúrudýrðina. Friðunin hefir haft spekjandi áhrif á dýrin. Þau hafa nú engan verulegan ótta af nálægð manna, en voru áður eld- stygg. Fyrst þegar bifreiðar tóku að renna eftir vegunum, varð flest- um dýrum hverft við. Þeim þóttu þessir veltandi hlutir nýstárlegir, en vöndust þeim brátt, er þau urðu þess vör, að þeir voru hættulausir og enginn voði stafaði af fólkinu, sem í þeim var. Þau kyrrðust því og hættu að gefa umferðinni gaum. Nú er auðvelt að taka ljósmyndir af dýrum á stuttu færi. En áður en landið var friðað, voru engin tök á að nálgast þau í því skyni. Dýra- konungshjónin eru oft á skemmti- göngu eftir vegunum. Bifreið, sem mætir þeim, verður að hægja á sér, þangað til þeim þóknast að

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.