Dvöl - 01.10.1939, Side 63

Dvöl - 01.10.1939, Side 63
D VOL 301 eyða þessari óró með því að hugsa um alla þá, sem mundu gleðjast yfir þessari hamingju minni. Það voru margir góðir, gamlir vinir, það voru systkini mín, og fyrst og fremst gamla móður mín, sem sat heima og gladdist yfir, að henni hafði auðnast að lifa þennan merkilega atburð. Samtímis var mér hugsað til föður míns, og ég saknaði þess sárt, að hann var ekki á lífi, svo ég gæti sagt honum, að ég hefði fengið Nobelsverðlaunin. Ég veit, að eng- inn hefði glaðzt af því eins og hann. Aldrei hefi ég þekkt neinn, sem hefir borið jafnmikla ást og virðingu fyrir skáldum og skáld- skap, og hefði hann nú fengið að heyra, að sænska Vísindafélagið hefði veitt mér mikil skáldaverð- laun. . . . Það var reglulega rauna- legt, að ég skyldi ekki geta sagt honum það. Hver,sem ferðazt hefir með járn- brautarlest í myrkri, veit, að stund- um renna vagnarnir lengi í einu einkennilega hljóðlega áfram, án þess að hristast. Allur hávaði og brestir hætta, og hin jafna hreyf- ing hjólanna verður að hljóðri einhliða sönglist. Það er eins og lestin þjóti ekki lengur eftir tein- unum, heldur svífi gegnum loftið. Samstundis og ég var að hugsa um, að ég vildi óska, að ég gæti talað við föður minn, kom þetta fyrir. Lestin brunaði áfram svo létt og hljóðlega, að mér fannst, að það væri ómögulegt að hún væri enn- þá á jörðinni. Og nú byrjaði mig að dreyma: „Hugsið ykkur, að ég ferðaðist nú til gamla föður míns á himnum! Ég hefi þó heyrt, að þvílíkur atburður hefir komið fyr- ir aðra. Hvers vegna gæti það ekki komið fyrir mig.“ Járnbrautarvagninn hélt áfram að líða kyrrlátlega og hljóðalaust áfram. En hvert sem hann nú fór, þá átti hann langt eftir, áður en hann næði ákvörðunarstaðnum, og hugsanir mínar fóru á undan hon- um. „Þegar ég kem nú til föður míns,“ hugsaði ég, „þá situr hann senni- lega í ruggustól úti á svölum, en fyrir framan hann skín sólin í blómagarðinum, sem er fullur af blómum og fuglum, og auðvitað situr hann og les í Friðþjófssögu. Og þegar faðir minn sér mig, legg- ur hann bókina frá sér, og ýtir gleraugunum upp á ennið, og svo stendur hann upp og kemur á móti mér. Og hann heilsar og býð- ur mig velkomna og „hvernig líður þér nú, stúlka mín?“ — alveg eins og hann var vanur. Fyrst þegar hann hefir komið sér fyrir á ný í ruggustólnum, spyr hann mig, hvers vegna ég sé komin til hans. „Það er þó líklega ekki neitt að heima?“ spyr hann allt í einu. „Nei, alls ekki, faðir minn, öll- um liður vel.“ Og ég ætla einmitt að fara að segja honum þennan nýja viðburð, en svo finnst mér ég vilja njóta hans ein svolítið leng-

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.