Dvöl - 01.10.1939, Síða 72
310
D VÖL
Hátíð á fjöllum
Eftir Hlöðver Sigurðsson skólastjóra.
I
Við erum á leið til fjalla. Við
komum að austan eða vestan, það
gildir einu. Takmarkið er Hellis-
heiði. Þar er háfjallahátíð 1 dag.
Sólin og heiðblár himinn setja há-
tíðasvip á náttúruna og blessaður
snjórinn er hvítur og hreinn. Enn-
þá fyllir hann þó lautirnar, en
hann hefir átt erfitt uppdráttar
undanfarna daga. Það hefir verið
herjað á hann bæði af sól og regni,
og hann hefir látið undan síga á
brúnum og hæðadrögum og skíða-
brautin var orðin auð, svo að bera
varð á hana snjó. Það er þetta,
sem ýmsum finnst ganga glæpi
næst. Uppreisn gegn ársældinni og
veðurblíðunni, jafnvel storkun við
sjálf náttúruvöldin. Mannfjöldinn
streymir að úr ýmsum áttum, líkt
og ótal lækir, er renna saman í
eina elfi og mynda stórkostlega
hringiðu. Miðdepill þessarar
hringiðu er krókótt braut í snjón-
um, eða eiginlega snjórák, sem
liggur í krókum og bugðum milli
auðra hæðadraga í brattri fjalls-
hlíð. Þarna er svigbrautin afmörk-
uð með veifum.
Fólkið ræðir um brautina, veðrið
og daginn og veginn, og hér er
fólk af ýmsu tagi. Þarna er nú t.
d. hann kunningi okkar frá í fyrra,
með gormbindingamar um hálsinn
og er að bera á skíðin sín. Hann
vandar sig eins og hann getur og
prófar rennslið, því að hann ætlar
sér að verða fyrstur í svigkeppn-
inni. Þarna er líka litli bróðir á
furuskíðunum sínum með „Balata“
böndin. Þegar hann er orðinn stór
ætlar hann-----það var nú annars
leyndarmál, sem hann trúir eng-
um fyrir. Þarna er pabbi og
mamma að sjá, hvernig synin-
um vegnar í keppninni. Þau
standa þarna bústin og sjálfs-
ánægð í nýjum skíðabúningum og
með skíði, sem þau stíga ekki á.
En þarna er líka hann afi gamli í
vetrarfrakka og skíðalaus, en hann
átti nú samt skíði, þegar hann var
drengur fyrir norðan, og þá stóð
enginn betur brekkurnar en hann.
Þá var maður nú ungur! Honum
finnst það vera hann sjálfur, þegar
hann sér drengpatta koma á
fleygiferð niður snjóskafl; hann er
aftur orðinn ungur. En hann
hrekkur allt í einu upp úr þessum
dagdraumum og verður eins og
dálítið vonsvikinn. Hann kannast
ekki við þessa sveigju. Þetta var þá
bara ókunnugur strákur.
En nú er tilkynnt, að erlendur