Dvöl - 01.10.1939, Qupperneq 74

Dvöl - 01.10.1939, Qupperneq 74
312 D VOL ur lífsins í kringum þá virðist láta þá ósnortna. Fyrst hefst söngur. Það er sungið um bláfjallageiminn og það, hve frjálst er í fjallasal. En svo er líka sungið um ofurlítið æfintýri, sem gerðist út við himin- bláu, bláu, bláu, bláu, bláu sundin, um litlu Reykjavíkurmeyna og káta karla, sem fóru til fiskiveiða frá Akranesi, og margt fleira. Þeg- ar allir eru orðnir hásir af að syngja, setjast stúlkurnar í hring og piltarnir raða sér fyrir aftan þær, en einn stóllinn er auður. Nú er byrjað að,,blikka“.Sá,sem stend- ur við auða stólinn, reynir að seiða til sín einhverja fallega stúlku, en allir reyna að halda sínu. Þá eru nokkrir teknir inn í flugfélagið, sem er reyndar ofurlitill, mein- laus hrekkur. En nú kemur kokk- urinn með spegil og lofar hverjum sykurmola að verðlaunum, sem sagt getur óhlæjandi, meðan hann horfir í spegilinn: „Ó, hvað ég er falleg, eða fallegur“ eftir því hvort við á. Og þetta er ótrúlega erfitt. Jafnvel fallegustu stúlkurnar geta ekki sagt þetta upphátt, nema hlæjandi. Þær vilja þó gjaman heyra þetta af vörum karlmann- anna. En nú kemur spegillinn til þingmannanna. Þeir lýsa hátíð- lega yfir því, hvað þeir séu fallegir, og stekkur ekki bros, fremur en þótt þeir væru að fara með tölur úr landsreikningum. Skyldu þeir hafa skrökvað fyrr? En nú vill einhver heyra draugasögur. Ljósið er slökkt og skíðakennarinn segir hroðalega draugasögu, sem oft mundi hafa nægt til að vekja óp og óstyrk í taugunum, en hún verkar ekki á fólkið. Taugaveiklun og móður- sýki virðist hafa verið skilið eftir í byggðinni. Og þá er bezt að nota tækifærið og syngja meðan tími er til. „Fyrr en varir æskuárin líða, og ellin kemur með sín gráu hár“. Þeir, sem ætla að keppa næsta dag, vilja fara að sofa. Uppi á lofti eru teknir fram svefnpokar og farið að tína af sér spjarirnar. Dýnurnar eru ekki einu sinni nógu margar handa stúlkunum, svo að það er sýnilegt, hvaða hlutskipti bíður karlmannanna. Innan skamms heyrist aðeins rólegur andardátt- ut skíðamannanna. Ef til vill dreymir þá um svig og brekku- skrið. Eða þeir svífa í draumi beint út í himingeiminn. Hver veit? III „Það er rok, rok, ég ræ ekki, ræ ekki, ræ ekki, rok, rok, ég ræ ekki, ræ ekki í dag.“ Hvílíkur morgun- sálmur. En nú er komið það, sem ekki er betra en rok. Það er komin hellandi rigning, og þó verður að róa í dag. Nú er seinasti dagur skíðamótsins, og á að keppa í stökkum. Keppendurnir eru á- hyggjufullir út af stökkbrautinni. Annars er skapið í bezta lagi hjá flestum. Menn sinna nauðsynleg- um morgunstörfum — matast, taka fram skíðin sín og bera á þau tjörukenndan áburð. Það er sungið og raulað við verkið eða kastað
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.