Dvöl - 01.10.1939, Page 77

Dvöl - 01.10.1939, Page 77
DVÖL 315 Risinn eig'ingjarni Eftir Oscar Wilde. Sagan (eða æfintýrið), er hér birtist, hefir áður verið þýdd á íslenzku. En þar sem þessi þýðing mun vera betri en hin eldri og sú þýðing nú í fárra manna höndum, þótti rétt að láta Dvöl geyma þessa fögru frásögu hins ástsæla enska stórskálds í þýðingu Þórodds Guðmunds- sonar kennara að Eiðum. Um höfundinn er dálítið sagt á bls. 353 í 4. árg. Dvalar. Á hverju kvöldi, þegar börnin voru komin úr skólanum, léku þau sér í garði Risans. Það var stór og yndislegur garð- ur með grænu, mjúku grasi. Á víð og dreif gægðust upp úr því yndis- leg blóm, sem helzt minntu á stjörnur. Þar voru líka tólf ferskju- tré, sem blómguðust fagurlega á vorin og báru ríkulega ávexti á haustin. Fuglarnir sátu í trjánum og sungu svo þýðlega, að börnin voru vön að hætta leiknum og hlusta á þá. „En hvað við erum hamingjusöm," sögðu þau fagnandi sín á milli. Dag nokkurn kom Risinn. Hann hafði verið í heimsókn hjá vini sínum, sem líka var tröll, og var búinn að dvelja hjá honum í sjö ár. Þegar þessi sjö ár voru liðin, hafði hann sagt frá öllu, sem hann gat sagt, því að samræðum þeirra voru takmörk sett. Og hann ákvað að fara aftur til kastala síns. Þeg- ar hann kom, sá hann að börnin voru að leika sér í garðinum. „Hvað eruð þið að gera hér?“ kallaði hann mjög höstum rómi. Börnin lögðu á flótta. „Garðurinn minn er þó alltaf minn garður,“ sagði Risinn; „það ættuð þið að geta skilið, og ég banna öllum að leika sér í honum nema sjálfum mér.“ Síðan byggði hann háan múrvegg umhverfis garðinn og festi upp auglýsingar- spj ald: ÞEIM, SEM BRJÓTAST INN, VERÐUR HEGNT. Þetta var mjög eigingjarn risi. Vesalings börnin gátu nú hvergi leikið sér. Þau reyndu að leika sér á götunni, en hún var bæði rykug og steinótt, og þeim féll það ekki í geð. Þau voru vön að reika um- hvefis háa múrinn, þegar skól- anum var lokið á daginn. Þá töluðu þau um það sín á milli, hve yndis- legt væri inni í garðinum. „En hvað það væri gaman að vera þar,“ sögðu þau. Vorið kom, og um allt landið voru lítil blóm og litlir fuglar. En í garði Risans eigingjarna var ennþá vetur. Fuglarnir vildu ekki

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.