Dvöl - 01.10.1939, Page 80

Dvöl - 01.10.1939, Page 80
318 DVÖL Árin liðu, og Risinn varð gamall og lasburða. Hann var hættur að geta leikið sér lengur og sat nú í geysimiklum hægindastól, gætti barnanna á meðan þau léku sér og dáðist að garðinum sínum. „Ég á mörg fögur blóm,“ sagði hann, „en börnin eru fegurst allra blóma.“ Vetrarmorgun einn leit hann út um gluggann sinn, þegar hann var að klæða sig. Hann hataði ekki veturinn nú orðið, því að hann vissi, að veturinn var ekkert ann- að en sofandi vor og hvíldartími fyrir blómin. Allt í einu fór hann að núa aug- un af tómri undrun og starði fram fyrir sig. Þetta var sannarlega undursamleg sýn. í fjærsta horni garðsins var tré alþakið yndisleg- um, hvítum blómum. Greinar þess voru gullnar og á þeim héngu silf- urlitir ávextir, en við rætur trésins stóð litli drengurinn, sem hann elskaði. Pagnandi hljóp Risinn niður stigann og út í garðinn. Hann flýtti sér yfir grasflötinn til barnsins. Og þegar hann leit á andlit drengsins, varð hann bólginn af reiði og sagði: „Hver hefir dirfzt að særa þig?“ Því að á lófum drengsins voru för eftir tvo nagla, og á litlu fót- unum hans voru einnig tvö nagla- för. „Hver hefir dirfzt að særa þig?“ hrópaði Risinn; „segðu mér það, svo að ég geti náð í sverð mitt og drepið hann.“ „Nei,“ sagði barnið, „því að þetta eru sár Kærleikans.“ TækifærisYÍsnr í síðasta hefti var þess getið, að nokkrir vinir Dvalar hefðu sent henni lausavísur um ýmis efni. Og af því að margir hafa gaman af tækifœrisvísum, þá skulu nokkr- ar þeirra birtar hér. Og koma þá fyrst fáeinar vísur eftir Ólínu Jónasdóttur úr Skagafirði: Um roskna konu, sem skyndilega varð bráðástfangin, kvað hún þetta: Ást ei fipast enn sitt starf, úr þér hripar gigtin, og í svipan einni hvarf árans piparlyktin. Hagyrðingur á Sauðárkróki kastaði fram við Ólínu þessum vísuhelmingi: Aldrei sá ég ættarmót með eyrarrós og hrafni. Ólína botnaði: Þó er allt af einni rót í alheims gripasafni. „Hver ert þú?“ spurði Risinn. Hann varð gripinn undarlegri lotn- ingu og féll á kné fyrir framan litla barnið. En drengurinn brosti við Risan- um og sagði við hann: „Einu sinni leyfðirðu, að ég léki mér í garðinum þínum; í dag áttu að koma með mér inn í garðinn minn, sem er í Paradís.“ Og þegar börnin voru að leika sér seinna um daginn, fundu þau Risann, þar sem hann lá undir trénu. Hann var dáinn og alþakinn hvítum blómum. Þóroddur frá Sandi þýddi.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.