Dvöl - 01.01.1943, Blaðsíða 5

Dvöl - 01.01.1943, Blaðsíða 5
DVÖL 3 kýrnar komu heim á kvöldin, voru þær stórar herdeildir, sem nálg- uðust. Hænsnin voru varnarlið borgarinnar, og haninn var Nan- sen borgarstjóri. Ansgar var röskur strákur, og kunni ártölin á fingrum sér, en hann hafði samt enga hugmynd um tímabil sögunnar. Þess vegna voru þeir Napóleon, Eiríkur blóð- öx og Tíberíus oft að einum leik hjá honum. Og á skipunum, sem sigldu framhjá úti á hafinu, barð- ist Tordenskjold ýmist við nor- ræna víkinga eða spánska sjó- ræningja. í holu bak við laufskálann geymdi hann rautt sópskaft, sem hét Bukafalus. Það var hans mesta skemmtun að þeysa um garðinn á þessum gæðingi með viðarteinung í hendinni. Skammt frá bænum var kjarri vaxin hæð. Þar gat hann legið í leyni eins og njósnari og skyggnzt yfir lynghæðirnar og hafið. Alltaf gat eitthvað verið á seyði. Annað hvort grunsamlegar skútur við ströndina, eða riddarahópar, sem nálguðust. En Ansgar mundi sjá við því. Hann henti sér á bak Bukafalusi og þeysti ofan hæðina, gegnum trjágarðinn og inn í húsa- garðinn. Hænsnin görguðu af skelfingu eins og dómsdagur væri kominn, og Nansen borgarstjóri flaug á skrifstofuglugga prestsins. Presturinn flýtti sér út í dyr og sá þá tagliö á Bukafalusi hverfa fyrir fjóshornið, þvi að þar átti að að búast til varnar. „Dæmalaus tryllingur er í þess- um dreng,“ hugsaði presturinn. Hann hafði megnan ímugust á allri þessari hernaðarhneigð. Ans- gar átti að verða friðarvinur eins og presturinn faðir hans, og þess vegna fékk það mjög á hann að sjá, hve ákaft drengurinn drakk í sig allar frásagnir um bardaga og stríð. Hann reyndi oft að lýsa fyrir drengnum hinni friðsamlegu og daglegu hlið á lífi fornmanna og ókunnra þjóða, en hann náði ekki áhuga drengsins með því. Ansgar vildi heldur fara eftir bókinni, og þar tók eitt stríðið við af öðru í frásögninni. Fólkið þar var ekki annað en hermenn, óg hetjurnar óðu í blóði, — og það var vonlaust verk fyrir prestinn að reyna að vekja meðaumkun drengsins með þeim, sem blæddi. Stundum flaug presti það í hug, að líklega hefði verið réttara að byrja á því að koma inn í þenna litla koll hugmyndum um frið og mannkærleika, áður en hann fór að lesa um bardaga þessara rán- gjörnu konunga eða árásir og launmorð forfeðranna. En svo mundi hann eftir því, að svona hafði hann lært, svo að þetta hlaut að vera rétta leiðin. Jú, Ansgar mundi verða talsmaður friðarins — það var áreiðanlegt. „O-jæja, — allt er í herrans hendi,“ sagði presturinn af trún-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.