Melkorka - 01.06.1949, Side 4
ekki upp í ermina um vœntanlegt ágœti rvtsins. Á loforðunum mun pað hvort eð er ekki
lifa. Aðeins viljum við minna konur á, að fjölbreytni pess og gagnsemi er nátengd áliuga
og samstarfsvilja lesendanna. Þvi viljum við Ijúka pessum ávarpsorðum með pví að láta i
Ijósi pá ósk, að Melhorka mceti hinni rómuðu gestrisni islenzkra kvenna í sveit og við
sjó, pví að pá er pess von að hún muni vel prífast.
Nanna Ólafsdóttir Svafa Þórleifsdóttir Þóra Vigfúsdóttir
HIN NÝJA STEFNA
Eftir Nönnu Ólafsdóttur
Undanfarna mánuði hefur ekki verið um
annað meira rætt hér á landi en Atlanzhafs-
sáttmálann. Ber ýmislegt til þess. í fyrsta
lagi, vegna þess, að með þátttöku í banda-
laginu skiptir þjóðin alveg um stefnu í utan-
ríkismálum, hafnar áður yfirlýstri stefnu
um hlutleysi í hernaðarátökum, en viður-
kennir úrslit vopnaviðskipta sem æðsta
dómsvald um rétt og rangt í deilum þjóða.
Þó er ekki um einhliða siðferðislega yfirlýs-
ingu að ræða, heldur skuldbindur þjóðin
sig til að framfylgja hinni breyttu stefnu
með markvissri uppbyggingu til að mæta
vopnaðri árás. í öðru lagi, óttinn um, að
verið sé að glata sjálfstæði þjóðarinnar. í
þriðja lagi, meðferð málsins af hendi ríkis-
stjórnar og Alþingis, þar sem því var ráðið
til lykta á vikutíma, þrátt fyrir öll loforð um
að veita þjóðinni tóm til að kynna sér mála-
vexti. Og í fjórða lagi, Jiinar ofbeldislegu
aðfarir ráðamanna þjóðarinnar til að þagga
niður í andstæðingum sínum í þessu máli!
(Mætti skjóta því hér inn í, livort annað
Jiefði verið eðlilegt, þar sem lýðræðisleg
sjónarmið virðast ekki lræfa málinu.)
Eins og vænta mátti, liefur verið deilt hart
um þátttöku okkar í þessu bandalagi og hef-
ur aðstaða deiluaðilja, til að kynna skoðanir
sínar, verið svo ójöfn sem frekast gat. For-
mælendur sáttmálans, mestur hluti þing-
manna þriggja stjórnmálaflokka, sem með
völdin fara í landinu, hafa notað aðstöðu
sína langt fram yfir það, sem sæmilegt er,
td þess að flytja þjóðinni einliliða skoðun á
málinu. Útvarpinu var lokað fyrir öðrum
skoðunum en þeirra; bannað var að flytja
fréttir af þinginu, ef þær fjölluðu um áskor-
anir til Alþingis að Jiafna þátttöku í banda-
laginu; illmögulegt var fyrir andstæðinga
bandalagsins að fá fundarhús til þess að
ræða malið, og stjórnarblöðin, að einu und-
anteknu, birtu ekki orð frá andstæðingum
bandaJagsþátttöku. Þessi eina undantekn-
ing, dagbl. Tíminn, hefur nú tekið upp
einhliða afstöðu með þátttöku Jíka. í ölJum
stjórnarflokkunum er fjöldi manna og
kvenna, sem andvígur er bandalagsþátttöku,
en þetta fólk hefur ekki fengið aðgang að
blöðum sínum, til þess að ræða þá hlið
málsins í þeim. Þetta er þó ekki Játið nægja,
lieldur ganga hótanir í garð þessa fólks fjöll-
unum hærra í þess eigin blöðum. Mun allur
þessi atgangur vera fyrsta framkvæmd á for.
mála AtJanzhafssáttmálans að „tryggja frelsi
og menningu . . . samkvæmt meginreglum
lýðræðis, einstaklingsfrelsis og Jaga“. Ef
framhald hinnar breyttu stefnu í utanríkis-
málum verður í samræmi við upphafið,
verður nauðsynlegt fyrir drjúgan hluta ís-
lendinga að brynja þankann á lrina nýju
2
MELKORKA