Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 22

Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 22
Þá var gott að sofna. Uni miðjan dag hélt ég áfram ferðinni. Daginn eftir: Sólskin. Fjöll til hægri handar. Blá vötn og svanir á vötnunum. Framundan gnæfir jökullinn. Ég hjóla eftir mjúkum moldarvegi út með ströndinni. Vorið á ég sjálf, hugsa ég með mér og læt sem mér komi það ekki við, þó að bændur hreyki sverði og rýi fé. Ég styð ekki land- búnaðinn með einu einasta lrandarviki í þetta sinn, fyrr en sláttur byrjar. Ég nálgast fallegan bæ. Bóndi er í sverði rétt við veginn. (Ég kalla það svörð, hvað sem Sunnlendingar segja!) „Eru nú sumar- leyfin í Reykjavík byrjuð?“ spyr hann og hugsar líklega eitthvað fleira. Ég segist ekki vera Reykvíkingur í sumar- leyfi, heldur farkennari fyrir vestan og vera í heyvinnu á sumrin, vorið eigi ég sjálf. Hann er Norðlendingur, og ég hef verið eitt sumar í kaupavinnu í sveitinni hans. Þess vegna höfum við um margt að tala. Hann býður mér í bæinn . . . Sólstöðunótt: Heiðin er brött. Ég er kóf- sveitt af að draga hjólið. Að lokum er ég komin þangað, sem heiðinni fer að halla vestur af og fjörðurinn blasir við, lygn og blár. Hrikaleg Iiamraströndin handan við fjörðinn er líka fagurblá í sólskininu. Ég Jief horft niður af þessum björgum með liálfum liuga. Þar vestra ala menn aldur sinn í kuldalegum hamravíkum við næðing og brimsog. Börnin eru tápmikil og skemmtileg. Ég er því fegin, að lralJar undan fæti. íslendingasögur lierma, að reimt hafi verið á þessum slóðum. Forynjur í manna. og kvikindalíki ofsóttu menn úti og inni. Ég er að Jiugsa um þetta, þegar að mér veður skepna hvít, loðin og hyrnd mjög (svo að ég orði það forneskjulega). Sé ég að vísu, að Jretta er venjulegur hrútur, en háttalag hans er engu búfé líkt. Hann ræðst á hjól- ið. Vegurinn er grýttur, og ég lief ekki á undan óvættinni. Hrúturinn kemur nokkr- um liöggum á lijólið. Hvellur! Þar sprakk! „Dekkið" var líka næstum ónýtt. „Dekk“ eru ekki fáanleg í Reykjavík. Ekki get ég sezt niður og gert við lijólið. Ég kemst ekkert með lrjól í eftir- dragi, sem lirúturinn kemst ekki líka. Hann gæti drepið mig! liugsa ég. Ég rölti niður heiðina með hrútinn á hæl- um mér. Öðru lrvoru greiðir hann hjólinu vonzkuleg lrögg. Ég nálgast byggðina. Tveir hestar eru á Jreit skammt frá veginum. Þeir líta upp livatlega. Annar kemur frísandi nreð reistan makka og bíður mín í götunni. Eru allar skepnur snarvitlausar í kvöld? Auðvitað er það fylgjan mín, sem lrestin- um er illa við. Þegar ég kem nær, tekur hann sprettinn, en nemur Jró staðar álengd- ar og lrorfir á eftir mér. Klukkan er orðin tólf, þegar ég kem nið- ur af lreiðinni. Þar eru vegamannatjöld. Vegamenn sitja úti í góðviðrinu. Ég segi þeim sögu mína, en Jreir eru ekki liissa á neinu. Þeir kannast við þrjótinn. Segja þeir mér, að upphaflega lrafi lrrúturinn verið mannelskur, en nú sé hann orðinn mann- lratari, komi aftur, lrvert senr Jrann sé flutt- ur, ofsæki alla og lrafi nýlega nreitt bílstjóra, senr var að gera við bíl uppi á lreiði. Þeir bjóðast til að gera við lijóJið. Ég hef von um að ná lráttum inni í þorpinu, ef það tekst fljótt. Okkur kenrur saman unr, að fólk nruni ekki sofna fyrir miðnætti frá öðrum eins kvöldroða. Verkstjórinn keniur á vettvang. Hann er svartsýnn, segir, að lrrúturinn nruni aldrei eira á heiðinni, okkur takizt varla að gera við hjólið og ég nái sjálfsagt ekki háttum. „En það er svo sem von, að Reykjavíkur- fólk langi til að sjá sig eittlrvað unr.“ Ég segist ekki vera Reykvíkingur, ég fari bráðunr að lieyja, en sé annars flökkukenn- ari og Irafi verið þarna fyrir vestan í vetur. Klettaströndin er nú orðin dimmrauð og gnæfir í kyrrðinni yfir silfurhvítan fjörð- inn. 20 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.