Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 6

Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 6
---------------------------------------N PÓRUNN MAGNÚSDÓTTIR: Strengleikar Á hörpustieng eg leik mitt IjóÖ um Ijúfa mánanótt, og mœli i hljóði ástaróð um unaðssemda gnótt. Ó lið ei, nótt, svo langt of ótt, min Ijúfa, kyrra mánanótt. Eg unni þér, eg ann, eg ann, svo ekkert getur jafnast við, af heitum muna hjartað brann og brennur svo það fœr ei frið. Um ungan svein, mitt scelumið, eg syng við þýðan strengjaklið. Það dagar senn, ó draumanótt, sem dvin, en störfin kalla mig og þungra kvaða þrautagnótt á þyrnigöngu um dimman stig. Samt mun eg œtið elska þig, min ást, mín sorg mun aldrei fela sig. V __________________________________' ríki um sig stórlega minnka og líkurn- ar fyrir því, að hægt væri að standa gegn árás vaxa, þar sem m. a. væri hægt að hafa samráð og samvinnu fyrirfram* um varnir landanna, ef til kæmi“. Þetta er meinlaust atriði fyrir hinar. þátttökuþjóðirnar, sem sjálfar hafa á hendi varnir sínar, en það sama verður ekki sagt um ísland. Allt hjalið um „engan her og herstöðvar á friðartím. um“ er að sniðganga veruleikann; það er ekki mögulegt að vera stríðsaðili upp á það að vera eingöngu skrautfjöður í hatti sam- herjanna. Að dómi formanns Sjálfstæðis- flokksins um áramótin var þátttaka íslands svo mikilvæg, að á því valt, hvort bandalag- ið kæmi að nokkru gagni eða ekki. Er lík- * Leturbreyting mín. N. Ó. legt, að íslandi sé þá ætlað að standa hjá sem óvirkur aðili? 4. grein sáttmálans hljóðar svo: „Aðilar sáttmálans munu taka upp samn- inga hvenær sem einhver þeirra telur að landsréttindi, stjórnarfarslegt sjálfstæði eða öryggi einhvers þátttökuríkisins sé í hættu.“ Samkvæmt þessari grein getur hvert ann- að þátttökuríkjanna haft dómsvald um það, hvenær öryggi íslands er hætt. Segjum t. d., að Bandaríkin væru á þessari skoðun. Það eru ekki mikil líkindi til, að önnur þátt- tökuríki yrðu á öðru máli, allra sízt ísland. Slík skoðun væri rneir en nóg tilefni, til að koma hér upp her og herstöðvum. Gerum okkur svo í hugarlund, að sömu menn og nú eru, væru hér við stjórn. Á þeirra máli heita allir andstæðingar banda- lagsþátttöku kommúnistar. Ennfremur tala þeir nú tíðar en nokkru sinni áður um bar. áttuna gegn kommúnismanum, eins og reyndar er höfuðslagorð Bandaríkjamanna um þessar mundir. Segjum svo, að andstæð- ingum bandalagsþátttöku yxi svo fiskur um hrygg, að líklegt mætti telja, að þeir hlytu meirihluta aðstöðu á þingi. Mundi „stjórn. arfarslegt sjálfstæði“ landsins þá í hættu, að dómi Portúgal eða að dómi Bandaríkjanna, svo að nefnt sé dæmi? Til þess að framkvæma sáttmálann, er sett á stofn ráð, sem hver aðili á fulltrúa í. „Ráðið skal setja á stofn þær undirnefndir, sem þörf kann að verða fyrir; sérstaklega skal það tafarlaust setja á stofn landvarna- nefnd, sem skal gefa ráðleggingar um ráð- stafanir til að framkvæma 3. og 5. grein.“ Varla er framkvæmdaráðið formsatriðið eitt saman og tæplega mun þetta eina at- kvæði íslands í ráðinu fá sett skilyrði urn það, livað ísland lætur af mörkum eða hve- nær, eins og formælendur samningsins vilja vera láta. Hitt mun sennilegra, að þetta ráð verði valdameira og athafnasamara en önn- ur sams konar, sem áður eru þekkt. Umrædd landvarnanefnd hefur þegar tek- ið til starfa. Ráðleggingar hennar varðandi 4 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.