Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 11

Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 11
Þegjandi fjöll á allar hliðar. eigi að grafast í jörð og ekkert drasl megi eftir liggja í kringum sælúhúsið, en í hlað- varpanum er heill faraldur af ryðguðu pját- ursrusli einkurn niður við lækinn, þar sem drykkjarvatnið er sótt. Hvílík sorg fvrir mennsk augu að sjá vanhelgaðan svona stað, en hve miklu verra hlýtur jrað þó ekki að vera fyrir öræfaandana. Það er sagt, að þeir lifi á fegurðinni. — — — Mega þeir þá víðar gxáta en í Hvítárnesi.------- Uppi á Bláfelli er æfintýralega víðsýnt í allar áttir. Tólf eða þrettán jöklar og ótelj- andi fjöll önnur, hvert sem litið er. Það þykir því rnjög eftirsóknarvert að komast þangað upp, en ekki auðfengið. Þokan, sem löngum hylur Bláfellshnjúkinn þegar ferða- manna er von, geymir gamlar þjóðsögur og nýjar. Bergþór sterki er þarna fjallvörður og hann varnar mönnum uppgöngu á fjall- ið með sama hætti og bóndanum í Hauka- dal forðurn, en Bláfell gæti vel verið helgi- staður dísanna í fjöllunum í kring. Það segir frá Bergþóri risa í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Hann var fjölkunnugur og breytti visnuðum laufblöðum í skíra gull, faldi svo hellinn sinn, og liefur engum auðnazt að finna hann í níu aldir. Hann ætt i samt að fara að finnast, því að nú skeð- ur svo margt óvenjulega leiðinlegt, því skyldi þá ekki líka einhvern tíma eitthvað undarlega skemmtilegt geta komið fyrir. Ef þú mundir vera svo lánsöm að finna hell- inn, þá eru laufblöðin í stórum katli við rúrnið og þau breytast í gull á leiðinni nið- ur. í Árbók Ferðafélagsins um þessar slóðir stendur — „en nú eru tröllin dauð og gæta ekki lengur að mannaferðum um óbyggð- ina“. Það má segja þetta manni í byggð, en á hálsunum fyrir ofan Þjófadali fer hann samt að efast. ------Við komumst upp á Bláfell í baka- leið. Hvilftin sem við gengunr npp eftir heitir Kórinn, en á fjallshryggnum er berg- smíði, sem vel mætti kallast Altari, sést það langa vegu. Langjökull er alveg á næsta leiti við Bláfell í vestrinu, og þangað er gott að líta. Eftir að hafa smám saman þok- azt upp snjófannir og brattar brekkur með einmanaleg þegjandi fjöll á allar liliðar, þá snúunr við enn einu sinni baki við hinni dýrðlegu tign Jarlshettanna og klifrum ótrauð en móð og másandi síðustu skrefin. Komin upp--------liúrra. En lrvað er þetta, hvað heldur þú, að við liittum efst uppi á þessum liáu, hljóðu slóðum —. Það er að vísu engin nýlunda að sjá göm- ul flöskubrot hjá fjallavörðum, mér liafði bara skilizt það á samferðafólkinu, að upp á Bláfell kærnist enginn óþveginn, en ég sé nú, að það hefur átt við Bergþórshelli, því að trúlega er hann vandfundinn þeim, er nrisnotað haf'a gestrisni óbyggðarinnar með því að brjóta hin óskráðu lög hennar um hreinleika og fegurð. Hér eigum við konur leik á borði, því að allir ferðalangar Jiafa eitt sinn verið börn og „livað ungur nemur gamall temur“. Ef lrægt væri með einlrverjum ráðum að kenna börnunum að virða og unna því, senr fagurt er — þá Jrlýtur fararstjórinn okkar einhvern tíman að geta sagt með salrni d örœfum er allt hreint.. Kaupandinn: Ég vil gjarnan kaupa hér bók. Bóksalinn: Á það að vera eitthvað létt? Kaupandinn: I>að hefur ekkert að segja, ég er mcð bílinn. MELKORKA 9

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.