Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 29

Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 29
Þá yrkir Björg um brimið í Fjörðum: Orgar brim í björgum, bresta ölduhestar, stapar standa tæpir, steinar margir kveina. Þoka úr j^essu rýkur, Jrjóð ei spáir góðu. Halda sumir liöldar hríð á eftir ríði. Og enn yrkir Björg um Firði: Fagurt er í Fjörðum, þá frelsarinn gerið veðrið blítt, heyið grænt í görðum, grös og heilagfiski nýtt. En þá veturinn að þeim tekst að sveigja, stað ég engan verri veit Fyrirtæki eitt lét prenta eftiifarandi heilræði á kaup- kvittanir veikafólksins: „Kaupið er þitt einkamál, og aðrir eiga ekki að vita neitt um það.“ Nýliðinn bætti við, um leið og liann kvittaði fyrir kaupinu sínu: „Ég skal ekki segja neinum frá því, ég skammast mín alveg jafn mikið fyrir það og þið.“ Brezkur herforingi sem bjó í Afríku var frægur fyrir hvað gott kaffi var f veizlum hans. Eitt sinn var það séistaklega ljúffengt og gestirnir vildu fá að vita hjá hinum dökka þjóni hvernig hann færi að búa til svo gott kaffi. Jú, ég tek mikið af sjóðandi vatni og mjólk og hræri saman við kaffið. En hvernig ferðu að „trekkja" það svona vel? spurðu gestirnir. Ég tek silkisokka húsbóndans ... Hvað, hrópaði gestgjafinn öskuvondur, tekurðu silki- sokkana mína til að hella í kaffi? Nei, nei, herra, æpti negrinn óttasleginn, ég tek aldrei þá hreinu. Þér þykir ekkert vænt um mig, sagði Dóra við mömmu sína sem hafði verið að ávíta hana. Jú víst þykir mér vænt um þig, sagði mamma hennar. Jæja, þú talar ekki þannig. Hveririg viltu að ég tali við þig? Ég vil að þú talir við mig eins og þú gerir þegar gestir eru. um veraldarreit, menn og dýr þá deyja. Björg gáði eitt sinn til veðurs og var spurð um, hvernig lrenni litist veðrið. Hún svaraði: Hillir valla Hrútkoll, hangir sá drangi við tanga, gustar vestan grimmt frost, goluna þolir sá bolur; aftur steypist um skip ísinn í flísum, því lýsi eg. Fellur illa faldþöll flóann að róa, því sóast burðirnir brúðar bera jrær prúðar limina lúða á ljóninu súða oe, öldunois gaddfrosinn allan o o o sinn skrúða. Ég elska svissnesku Alpana, þeir hafa veitt mér unaðs- legustu stundir lífs míns. Nú hvernig stendur á því, þú hefur aldrei komið til Sviss. Nei ekki ég, en konan mín. 1 leikfangabúð Lítill strákur hafði klifrað upp á tréhest og neitaði að fara niður aftur. Móðir hans þrábað hann; búðarfólkið bauð honum alls konar fríðindi, en allt kom fyrir ekki. Þá bar þar að frægan sálfræðing. Hann hvíslaði ein- hverju í eyra stráksa, sem flýtti sér af baki og fór heim með móður sinni. „Hvað söguð þér?“ spurði búðarfólkið. „Ég sagði rétt si svona: Hypjaðu þig af hestinum, strákskratti, eða ég hýði þig,“ sagð'i sálfræðingurinn. Þrjár dúfur ætluðu að fá sér kaffi. Þegar þær voru að fara inn í kaffistofuna fór að rigna, svo að stærsta dúfan sagði við þá minnstu: „Farðu heim og náðu í regnhlífina." Og litla dúfan svaraði: „Ég skal gera það, en þið megið ekki diekka kaffið mitt á meðan." „Það gerum við ekki,“ lofuðu hinar tvær. Tveim tímum síðar sagði stóra dúfan við miðdúfuna: „Hún ætlar ekki að koma aftur, svo að það er bezt fyrir okkur að drekka kaffið hennar." Um leið og hún sagði þetta kallaði lítil rödd rétt utan við dyinar: „Ef þið gerið það, þá fer ég ekki.“ MELKORKA 27

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.