Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 34

Melkorka - 01.06.1949, Blaðsíða 34
En — þarfir líkamans knýja fastar á en hin andlegu verðmætin. ,,Ætlarðu ekki að Ijúka við buxurnar?" spurði áköf barnsrödd. „Já, og kjólinn þinn . . .? Bráðum koma þeir með linappana." Þrjár mannverur liorfa skærum, alvarlegum barnsaugum hvetjandi á mig. Eftir tvo .tíma heyrast glað- ar raddir; rennandi blautir koma dreng- irnir þjótandi inn í eldhúsið, þar sem lit- aður baðmullarkjóll hangir til þerris yfir eldavélinni, og á borðinu er vatnsgrautur og mjólk, kartöflur og síld. Við munum að minnsta kosti hátta södd. Á morgun höfum við einhver ráð. „Hér er bréf og böggull til þín frá út- landinu, þú hefðir átt að sjá hvernig þau göptu þarna hjá kaupmanninum, en þau fengu ekki að sjá neitt, því að frúin vafði það hvorttveggja inn í pappír og sagði, að við yrðum að gæta þess vel.“ Ég settist við vélina, orðlaus, yfirkomin. Bréf erlendis frá. Böggull. Hver í ósköpun. um? Bréfið var frá Suður-Þýzkalandi. í böggl- inum voru tvær bækur, Ditta mannsbarn. Bréfið var frá Martin Andersen-Nexö. Fyrir nokkrum árum hafði ég lesið bók eftir hann, Pelle, sigurvegarann, og hafði sent bréf eitthvað út í heiminn. Núna, tveim ár- um síðar, kom svarið. Mikill rithöfundur, sem skrifaði svona stórkostlegar bækur. I-Iann sendi bréf og bækur hingað, til þessa hrörlega fátæklingaheimilis. Já, hann gat ekki vitað hvernig hér var umhorfs, guði sé lof! Ég drúpti höfði og grét, ekki af gleði, ekki af sorg. Ég veit ekki enn þann dag í dag hvers vegna ég grét. „Lestu bréfið," hvíslaði elzti drengurinn. Ég las það og skýrði dönsku orðin eins vel og ég gat fyrir börnunum, sem lilustuðu á með fjálgleik. Það er eitt bezta bréfið, sem ég hef fengið um ævina, en þau munu vera á milli 2 og 3 þúsund. „Nú verðið þið að fá eitthvað ofan í ykk- ur og þurr föt,“ sagði ég. Fjör færðist í okkur. Við ætluðum á skemmtun; hvað voru fataræflar, skuldir og lélegur matur, þegar maður fékk bréf frá heimsfrægum rithöfundi. Við borðuðum og lásum bréfið aftur, og drengjunum fannst að danska væri mál, sem hægt væri að lesa. Var útlenzka ekki erfiðari en svo, hún var þá ekki meira en þetta. „Nú ætla ég að festa hnappana, komið þið með þá.“ Þeir höfðu gleymt hnöppunum og síld- unum. Bréf og böggull til mömmu frá út. landinu var ævintýri, og því gleymdust hnappar, síld og buxur saumaðar upp úr bezta kjólnum hennar mömmu. Hálfrar mílu veg höfðu þeir þrammað í regni og myrkri og komu heim hnappalaus- ir. Þeir höfðu gleymt eigin skemmtun vegna þeirrar gleði, sem þeir héldu að ég mundi hafa af bréfinu. Einhver annar hefði ef til vill orðið reiður og komið með áminningar, en ég gat það ekki. Ég hughreysti þá og sagð- ist mundu ráða fram úr þessu, og svo kveikti ég á ljóskerinu og klifraði upp á geymslu- loft og tók hnappana af beztu fötunum hans mágs míns; hann geymdi þau þarna uppi til þess að leiðast ekki í freistni og veðsetja þau, þegar sá gállinn var á honum. Ég saumaði hnappana í buxurnar án þess að hafa nokkur orð um það. Drengirnir sögðu ekkert lieldur. Þeir vissu jafnvel og ég, livað til var í húsinu. Við klæddum okkur fyrir hátíðina, frum- raun tveggja drengja, átta og tíu ára, á leik- sviðinu og fyrstu sýningu á leikriti eftir mig. Ég vissi að á mörgum heimilum í sókn- inni sátu mæður yfir buxum og kjólum og saumuðu og hugsuðu um hversu lífið var erfitt, þegar þurfti að afla sér ofurlítils há- tíðahalds, hlýju og andlegra verðmæta. Börn frá fátækustu heimilunum áttu að leika í leikriti, áttu að vera eitthvað, áttu að lesa kvæði fyrir. áheyrendahópi, áttu að taka þátt í félagslífi. í húminu næsta dag gengum við, ég og börnin mín, á barnaskemmtun í Reglunni, 32 MELKORKA

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.