Melkorka - 01.06.1949, Page 18

Melkorka - 01.06.1949, Page 18
sannast, að urn alllangt skeið hafa konur haft sama 'rétt og karlar til náms í opinber- um skólum samkvæmt lögum. En hitt er jafnframt alkunna, að ýmsum örðugleikum hefur verið bundið fyrir konur að komast að ýmsu sérnámi i greinum, er karlar hafa áður stundað einir, svo sem margvíslegu iðnnámi. Mun því hafa verið tilætlun flutn- ingsmanns með þessari lagagrein, að úti- loka það með öllu, að konum yrði bægt frá slíku námi, ef þær kynnu að æskja þess. Fimmta grein er fullkomin árétting á ákvæði 2. greinar um stöðuval kvenna, í því skyni sett inn sem sérstök lagagrein með skýlausum fyrirmælum, að ekki komi til mála að liægt sé að bægja konum frá þeim störfum, sem þær á annað borð kjósa sér, nema með því að brjóta lög landsins. Sjötta grein fjallar um rétt kvenna til að hljóta sömu laun og karlar við sams konar störf. Að vísu eru konum ætluð sömu laun og körlum í þjónustu hins opinbera, en engin ákvæði munu vera til urn þetta, að því er snertir atvinnulífið. í lögunum um almannatryggingar frá ár- inu 1946 er bersýnilega gert ráð fyrir því, að konur hafi lægri laun en karlar. Sést það af því, að í þessum lögum eru konunt gerð lægri iðgjöld til trygginganna en körlum. Væri slíkt með öllu tilgangslaust og órétt- mætt, ef konur bæru hin sömu Iaun úr být- um við livers konar störf sem karlar. Má í þessu sambandi benda á, að konur í kenn- arastétt hafa jafnan greitt sama iðgjald í Lífeyrissjóð barnakennara sem starfsbræður þeirra, enda jafnan Itúið við sömu laun sem þeir. En einmitt þessi ráðstöfun löggjaf- anna frá því herrans ári 1946 bendir ótví- rætt á ]>að, hve rótgróinn sá hugsunarháttur er, að laun kvenna hljóti jafnan að verða lægri en karla. Ákvæðin í 6. grein frum- varpsins til laga um réttindi kvenna eru því áreiðanlega nauðsynleg og þess eðlis, að þjóð, sem vill að allir njóti fullkominna mannréttinda, getur ekki leitt það hjá sér að lögfesta þau sem allra fyrst. Um 7. og 8. grein þarf ekki að fjölyrða. Fyrr í greinarkorni þessu var á það minnst, að flutningsmaður frumvarpsins og þeir, sem honum fylgdu að málum, hefðu viljað stíga í einu skrefi þau spor, sem á vantar til fullkomins jafnréttis kvenna og karla að lögum. Enda þótt svo giftusamlega hefði til tek- izt, að frumvarpið hefði náð fram að ganga og orðið að lögum, var þó enn eftir þyngsta þrautin að breyta hugsunarhætti bæði karla og kvenna á þá lund, að ekki væri fyrst og fremst á það litið, hvort karl eða kona tækj- ust á hendur eitthvert starf, heldur hitt, að hæfur maður, karl eða kona, skipi hverja stöðu þjóðfélagsins. Fyrir allmörgum árum bar það til í þorpi einu hér á landi að bægja átti konu nokk- urri frá skólastjórastarfi við barnaskólann þar. Hafði hún þó gegnt starfi þessu að því er séð varð sómasamlega 1—2 undanfarin ár án þess að hafa veitingu fyrir því. En nú hafði hún sótt um að fá veitingu fyrir starf- inu, en skólanefnd ekki mælt með henni, heldur leitað fyrir sér um að fá karlmann í stöðuna. Einn af skólanefndarmönnum var spurður um orsök þessarar ráðstöfunar eða hvort skctlanefnd teldi konu þessa eigi færa til að gegna stöðunni. ,,Ja,“ svaraði hann, ,,það er að vísu augljóst mál, að hún er fæddur stjórnandi, en við álítum samt heppilegra, að skólastjórinn sé karlmaður." Þessi hreinskilnislega játning skólanefnd- armannsins er opinberun hins ríkjandi hugsunarháttar: Þótt kona sé gædd þeim hæfileikum, sem þarf til einhverra sérstakra starfa, er það samt sem áður lieppilegra eða viðkunnanlegra að stöðunni gegni karlmað- ur. Vel launaðar stöður eru líka stöku sinn- um álitnar hæfa betur körlum en konum, þótt flestir hlífist við að láta álit uppi vegna þess, að þeir fyrirverða sig fyrir svo lágkúru- legan hugsunarhátt. Við þessa drauga þarf að berjast, þótt erfiðir séu viðfangs svo sem draugar hafa jafnan þótt vera, þar eð erfitt reynist að festa á þeim hendur. En hitt er 16 MEI.KORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.